Aðalsaksóknari Parísar tilkynnti í dag að embættið hyggðist opna rannsókn á kynferðisbrotum gegn ólögráða einstaklingum í tengslum við Jeffrey Epstein. Þetta sagði í tilkynningu sem barst frá skrifstofu Rémy Heitz, saksóknara og var þar bætt við að ákvörðunin um að opna rannsókn hafi verið tekin vegna upplýsinga sem hafi borist skrifstofu hans og í samstarfi við Bandarísk yfirvöld.
„Möguleg brot gegn frönskum þolendum í Frakklandi sem og utan landsteinanna verða rannsökuð auk þess verða franskir borgarar sem eru grunaðir rannsakaðir,“ sagði í tilkynningunni.
Mögulegt að meðal þeirra ákæra sem verða lagðar fram verði nauðgun, kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingum og þar á meðal börnum undir 15 ára aldri sagði saksóknarinn. Embætti saksóknara mun einnig rannsaka ásakanir um að Epstein, ásamt fleirum, hafi verið viðloðin barnaníðshring um árabil.
Í vikunni fundu bandarískir rannsakendur tengsl Epstein við Frakkland en hann átti íbúð í París, nærri Sigurboganum, og var handtekinn í New York þegar hann var nýfloginn heim frá París.
Franski hópurinn Innocence en Danger, sem berst fyrir og styður við fólk sem varð fyrir kynferðisbrotum sem börn, sagði í vikunni að til þeirra hafi borist 10 tilkynningar um kynferðisbrot af hálfu Epstein eða einstaklingum sem tengdust honum gegn börnum í Frakklandi.
Þeir sem hafi sagst vera fórnarlömb hafi ekki allir verið Frakkar en „meint brot gerðust öll á franskri grund og líklegast af hálfu franskra einstaklinga,“ sagði Homayra Sellier, leiðtogi Innocence en Danger.
Einn þeirra sem hefur verið ásakaður að hafa útvegað Epstein ólögráða einstaklingum er Jean-Luc Brunel. Brunel var einn nánasti vinur Epstein og einn valdamesti maðurinn í franska tískuheiminum. Hann hefur neitað allri sök.