Króatía, silfurlið HM 2018, gerði 1-1 jafntefli við Aserbaídsjan í Bakú í undankeppni EM 2020 í dag.
Luka Modric, fyrirliði Króatíu, fagnar 34. ára afmæli sínu í dag.
Það var því vel við hæfi að hann kæmi Króötum yfir með marki úr vítaspyrnu 11. mínútu.
Það dugði Króatíu þó ekki til sigurs því Tamkin Khalilzada jafnaði á 72. mínútu. Lokatölur 1-1.
Króatar eru á toppi E-riðils með tíu stig. Aserar eru á botninum með stigið eina sem þeir fengu í dag.
Mark Modric á afmælisdaginn dugði Króötum ekki til sigurs
