Umfjöllun: Selfoss 28-35 ÍR | ÍR-ingar skelltu Íslandsmeisturunum Hólmar Höskuldsson skrifar 16. september 2019 20:45 Bergvin Þór Gíslason. vísir/ernir ÍR fór illa með Íslandsmeistara Selfoss í Olís-deild karla í kvöld þar sem Breiðhyltingar unnu sjö marka sigur eftir að hafa leitt með tveimur mörkum í leikhléi, 13-15. Af hverju vann ÍR? Sigurður Ingiberg stóð vaktina gífurlega vel í marki ÍR í kvöld. Að auki voru Selfyssingar með 9 tapað bolta en ÍR-ingar skoruðu 8 mörk úr hraðaupphlaupum gegn aðeins einu hraðaupphlaupsmarki Selfyssinga. Má með sanni segja að það hafi haft eitthvað að gera með þennan geysisterka sigur ÍR-inga. Hverjir stóðu upp úr ? Í liði ÍR var Björgvin Hólmgeirsson með 8 mörk og 3 stoðsendingar og Sveinn Andri Sveinsson með 7 mörk ásamt því að Sigurður Ingiberg var með ásættanlega 33% markvörslu. Í liði Selfyssinga var Haukur Þrastarson atkvæðamestur með 7 mörk og 6 stoðsendingar og Hergeir Grímsson með 6 mörk. Hvað gekk illa ? Vörn Selfyssinga átti erfitt uppdráttar þrátt fyrir sæmilega 30% vörslu hjá markvörðum Selfoss , en oft á tíðum virkaði auðveldara fyrir ÍR-inga að skora heldur en Selfyssingana . Hvað gerist næst Augljóst er að Selfoss þarf eitthvað að líta í eigin barm og laga sinn varnarleik áður en þeir mæta sterku liði Vals í Origo Höllinni að Hlíðarenda næstkomandi laugardag. ÍR-inga bíður mun auðveldari bráð þar sem þeir mæta nýliðum HK í næstu umferð. Olís-deild karla