Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri stendur nú í ströngu, reyndar standa á honum öll spjót og í gær hlaut hann þung högg þegar allir lögreglustjórar landsins, ef frá er tekinn Ólafur Helgi Kjartansson lögreglustjóri á Suðurnesjum, lýstu yfir vantrausti á hann. Þegar leið á daginn bættust þeir í Landsambandi lögreglumanna við og lýstu jafnframt yfir vantrausti á Harald.
Slík staða er fordæmalaus og bjuggust margir við því að Haraldur myndi í dag stíga til hliðar til að lægja öldur. Samkvæmt nýjustu fréttum virðist sem hann ætli að stíga ölduna. Óhætt er að tala um krísu í sambandi við þá stöðu sem upp er komin.
Einbeittur brotavilji að klúðra viðtalinu
Kornið sem fyllt mælinn að mati Úlfars Lúðvíkssonar, formanns Lögreglustjórafélags Íslands, og margra annarra sem varðar óþol gagnvart Haraldi Johannessen er viðtal sem hann fór í og birtist í Morgunblaðinu laugardaginn 14. september. Þar nefndi hann meðal annars að spillingu mætti finna innan lögreglunnar og var það lagt upp svo að um væri að ræða hótun af hálfu Haraldar; að vildu menn ýta honum út gæti farið svo að hann tæki fleiri með sér í fallinu.„Það eina sem mig langar að vita núna er hvaða PR-maður ráðlagði Ríkislögreglustjóra að fara í viðtalið við Moggann? NB Viðtal sem þeir báðir fengu væntanlega að lesa yfir, en láta samt þessi spillingarbrigsl standa? Að klúðra svona viðtali er eitthvað sem krefst einbeitts brotavilja.“
Ákvörðunin alltaf viðskiptavinarins
Friðjón segir, í samtali við Vísi, að KOM starfi ekki fyrir Harald persónulega heldur embættið. Og hann tekur skýrt fram að hann tali ekki um einstök mál tengdum skjólstæðingum fyrirtækisins. Slíkt komi ekki til greina. En, vissulega sé það rétt að eitt verkefna sem KOM og önnur fyrirtæki á þessu sviði standa frammi fyrir sé krísustjórnun, sem hefur verið tískuorð undanfarin misseri.Og þá er spurt hvað fyrirtæki á borð við KOM gera þegar slík staða er komin upp? Friðjón segir að ávallt sé leitast við að aðstoða viðskiptavini í átt að lausn sem hann sé sáttastur við.

Stundum brennur húsið
Að sögn Friðjóns er vandinn sem hann og fyrirtæki í hans geira standa frammi fyrir sá að stundum komi þau of seint að málum.„Og maður er þá ekki lengur í slökkvstarfi heldur rústabjörgun. Stundum eru utanaðkomandi aðstæður þannig að það skiptir engu máli hvaða ráð maður gefur; húsið brennur. En oftast er hægt að koma í veg fyrir það og oftast er það svo að ef menn hlíta þeim ráðum sem þeim eru gefin er okkar hlutverk að hafa tiltekið sjónarhorn á aðstæður,“ segir Friðjón og ítrekar að hann sé að tala almennt.

Að hjálpa mönnum upp úr bönkernum
„Almennt séð er það þá okkar hlutverk að hafa yfirsýn yfir stöðuna og geta sagt mönnum hvort óhætt sé að stíga úr bönkernum. Oftast er það þannig að mönnum sem finnst að sér sótt úr öllum áttum telja að himnarnir séu að hrynja yfir sig en í langflestum tilvikum líður það hjá. Best að anda með nefinu.“Friðjón segir að í þremur fjórða tilvika ráðleggi hann sínum skjólstæðingum að gera ekki neitt.
„Það kemur önnur frétt eftir sex tíma, en stundum er sagan of stór og of djúsí og lifir því það eru aðrir þættir sem keyra hana áfram. Og þá þarf að bregðast við.“