„Átta af níu lögreglustjórum landsins vantreysta ríkislögreglustjóra,“ segir Úlfar. „Viðtal sem tekið var við ríkislögreglustjóra fyrir rúmri viku síðan er eitthvað sem lögreglustjórar sætta sig ekki við þegar við erum að tala um ríkislögreglustjóra þjóðarinnar.“
„Að okkar mati talar hann mjög óábyrgt, hann talar um spillingu og gefur sitt lítið af hverju í ljós. Hann talar um að segja frá einhverju sem enginn veit hvað er. Ég tek það fram að lögreglustjórar þekkja ekki þessa umræðu, [hann hefur] aldrei rætt þetta við okkur svo að ég viti.“
Samskiptaleysi og djúpstæður vandi innan lögreglunnar
Lögreglan á Íslandi hefur aldrei fyrr staðið frammi fyrir svo djúpstæðum vanda. Vantraust af þessari stærðargráðu er fordæmalaus á Íslandi. Úlfar telur þó vert að taka fram að hann tali ekki sem slíkur fyrir hönd félagsins en í Lögreglustjórafélaginu eru fleiri. Hann talar fyrir hönd átta af níu lögreglustjóra.
Úlfar segir lögreglustjórana afar ósátta við störf Haralds og hafi sú óánægja staðið lengi. „Samskipti við ríkislögreglustjóra hafa í langan tíma ekki verið eins og við viljum sjá. Samskiptaleysi get ég talað um og vandinn er djúpstæður.“
Að sögn Úlfars er einnig að finna verulega óánægju meðal sérsveitarmanna með Harald. Úlfari skilst að Haraldi hafi boðist starfslokasamningur í sumar en hann ekki þegið. Úlfar er ómyrkur í máli en hann lítur svo á að ríkislögreglustjóri sé, eins og málum er nú skipað, óstarfhæfur.
„Ég hef auðvitað vissu fyrir því að það er mikil óánægja meðal sérsveitamanna, það hefur komið fram í fjölmiðlum, mikil óánægja þannig að hann er að glíma við innri mál og satt best að segja þá lít ég svo á að ríkislögreglustjóri í dag sé óstarfhæfur. Þetta er búið að standa yfir í langan tíma og hann nýtur ekki nægilegs trausts. Hann er farinn að skyggja á starfsemi þess embættis sem hann gegnir,“ segir Úlfar.
Segir ríkislögreglustjóra drepa málum á dreif
„Við lögðum spilin á borðið á fundi með Áslaugu Örnu [Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra]. Ég lít svo á að ríkislögreglustjóri sé óstarfhæfur.“Úlfar segir embætti ríkislögreglustjóra og embættisfærslur hans hafa verið til skoðunar hjá Ríkisendurskoðun.

Hann segist ekki hafa orðið var við það að málið hafi haft áhrif á störf lögreglu í landinu. Skipan löggæslumála á Íslandi sé góð og samstarf lögreglustjóra með miklum ágætum. Hvorki sé verið að kljást um fjármál né embætti.
„Ég veit ekki til þess að einstaka lögreglustjórar hafi áhuga á embætti ríkislögreglustjóra,“ segir Úlfar.
Haraldi boðinn starfslokasamningur
Úlfar segist ekkert kannast um tal ríkislögreglustjóra um spillingu. Hann segir sjálfsagt mál og eðlilegt að krefja hann skýringa. „Þetta eru dylgjur, spilling innan lögreglunnar kemur upp af og til, við þekkjum það, en að dylgja með þessum hætti er óábyrgt og það er óábyrgt af þessum manni og á sér ekki fordæmi.“
Landsamband lögreglumanna lýsir einnig yfir vantrausti
Formannafundur Landssambands lögreglumanna hefur bæst í hóp þeirra sem lýsa yfir vantrausti á Harald Johannessen ríkislögreglustjóra. Í yfirlýsingu sem send var á fjölmiðla nú síðdegis er skorað á Harald að stíga til hliðar.Í yfirlýsingunni segir að ljóst sé að ríkislögreglustjóri njóti ekki lengur trausts lögreglumanna í landinu. Því lýsi formannafundur landssambandsins yfir vantrausti á Harald. Yfirlýsingin var samþykkt á formannafundi félagsins sem haldinn var í dag.
Fréttin var uppfærð klukkan 18:46.