Til mikilla átaka kom í Barcelona í Katalóníu í nótt og segja spænsk yfirvöld að áttatíu hafi slasast, þar af 46 lögreglumenn.
Mótmæli hafa nú staðið yfir í borginni í þrjá daga en mikil reiði er í Katalóníu vegna dóma sem kveðnir voru upp yfir leiðtogum sjálfstæðissinna í héraðinu. 33 voru handteknir í nótt og fjórir voru í kjölfarið hnepptir í varðhald.
Í morgun voru mótmælendur aftur mættir og lokuðu meðal annars fjölfarinni hraðbraut sem tengir Frakkland og Spán.
Búist er við því að enn bæti í mótmælin um helgina þegar stéttarfélög Katalóníu ætla að taka þátt, en námsmenn hafa verið í miklum meirihluta mótmælenda hingað til.
Quim Torra, forseti héraðsstjórnarinnar, hefur fordæmt allt ofbeldi og segir að því verði að ljúka þegar í stað. Segir hann að ofbeldisseggir, sem ekki tengjast hreyfingu aðskilnaðarsinna, séu með aðgerðum sínum að reyna að koma óorði á baráttu aðskilnaðarsinna.
Áttatíu slösuðust í átökum í Barcelona

Tengdar fréttir

Junqueras segir nýja þjóðaratkvæðagreiðslu óumflýjanlega
Oriol Junqueras segir að dómarnir yfir leiðtogum katalónskra aðskilnaðarsinna komi bara til með að efla aðskilnaðarheyfinguna.

Senda fleiri lögregluþjóna til Katalóníu
Mótmælendur hafa haft hátt um sig í héraðinu frá því leiðtogar sjálfstæðishreyfingarinnar voru dæmdir í fangelsi á mánudag.