Sigurbjörn Hreiðarsson, nýráðinn þjálfari Grindavíkur, segir það spennadi en krefjandi verkefni að komast aftur upp í deild þeirra bestu.
Grindavík féll í haust úr Pepsi Max deild karla en ætlar sér ekki að dvelja lengi í Inkassodeildinni.
„Mjög spennandi að taka við Grindavík, nýfallnir og það verður bara krefjandi að ná þeim aftur á tærnar,“ sagði Sigurbjörn í kvöldfréttum Stöðvar 2.
„Það er þarna fyrir öflugur kjarni af mönnum.“
„Við ætlum að reyna að vera samkeppnishæfir og gera atlögu að því að fara upp aftur.“
