Haukar endurheimta strák frá Bandaríkjunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. október 2019 15:15 Bragi Magnússon formaður handsalar samninginn við Breka Gylfason. Mynd/Haukar
Breki Gylfason er kominn aftur á Ásvelli og ætlar að klára tímabilið með Haukum í Domino´s deild karla í körfubolta. Breki Gylfason gerði tveggja ára samning en hann er að koma heim úr námi í Bandaríkjunum. Haukarnir halda því áfram að styrkja sig með fyrrum leikmönnum félagsins en þeir endurheimtu líka Kára Jónsson rétt fyrir mót og þá snéri Emil Barja einnig heim í sumar. Breki lék síðast með Haukaliðinu tímabilið 2017-2018 og var partur af Deildarmeistaraliði Hauka. Þá hefur hann verið í leikmannahópi A- landsliðs Íslands og lék með liðinu á síðustu Smáþjóðaleikum. Breki var með 7,8 stig og 3,3 fráköst að meðaltali í deildarkeppninni 2017-18 en í úrslitakeppninni var hann með 6,1 stig og 2,9 fráköst í leik. Breki varði síðasta tímabili í Bandaríkjunum þar sam hann var við nám við Appalachian State University en vegna breytinga hjá liði skólans ákvað hann að snúa heim og taka slaginn með Haukaliðinu. Á eina tímabili sínu með Appalachian State var Breki með 2,2 stig og 0,8 fráköst að meðaltali á 6,6 mínútum og á því sést að hann var ekki með stórt hlutverk í liðinu. „Það þarf ekki að fjölyrða um hversu mikill styrkur liggur í því að fá Breka aftur til liðsins og eru Haukar nú orðnir gríðarlega vænlegir til árangurs,“ segir í fréttatilkynningu Hauka.
Dominos-deild karla Mest lesið Sauð upp úr á blaðamannafundi Hollands á EM Fótbolti Liverpool borgar fjölskyldu Jota það sem hann átti eftir af samningnum Sport Taka ákvörðun um Glódísi á leikdag Fótbolti Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 0-0 | Hundleiðinlegt í Eyjum Íslenski boltinn Óvissan tekur við hjá Hákoni Enski boltinn Heimir og Lagerbäck sameinaðir á ný Fótbolti Uppgjörið: Vestri - Valur 0-2 | Valur heldur pressu á Víkingum Íslenski boltinn Þrennubikar Man. United geymdur á Anfield Enski boltinn Uppgjörið: ÍA - Fram 0-1 | Vuk heldur áfram að skora Íslenski boltinn Oasis tileinkaði Diogo Jota lag á fyrstu tónleikunum í sextán ár Enski boltinn Fleiri fréttir Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Sjá meira