Atlético upp að hlið Barcelona á toppnum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Morata og Saúl skoruðu mörk Atlético Madrid í sigrinum á Athletic Bilbao.
Morata og Saúl skoruðu mörk Atlético Madrid í sigrinum á Athletic Bilbao. vísir/getty
Atlético Madrid jafnaði Barcelona að stigum á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar með 2-0 sigri á Athletic Bilbao á heimavelli í kvöld.

Þetta var fyrsti sigur Atlético í fjórum leikjum. Liðið er með 19 stig líkt og Börsungar sem eiga leik til góða.

Saúl Níguez kom Atlético yfir á 28. mínútu eftir undirbúning Ángels Correa.

Á 64. mínútu bætti Álvaro Morata öðru marki við með skoti af stuttu færi eftir sendingu frá Correa.

Atlético hefur aðeins skorað tíu mörk í fyrstu tíu umferðum spænsku deildarinnar. Aftur á móti hefur liðið aðeins fengið á sig fimm mörk, fæst allra.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira