Real mistókst að taka toppsætið af Börsungum Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 2. nóvember 2019 21:45 Hazard náði að skora mark en það taldi ekki vegna rangstöðu vísir/getty Real Madrid náði ekki að nýta sér tap Barcelona frá því fyrr í dag og fara á topp La Liga deildarinnar, Real gerði jafntefli við Real Betis á heimavelli. Fyrr í dag tapaði Barcelona nokkuð óvænt fyrir Levante og átti Real því tækifæri á að fara á toppinn með tveggja stiga forskot. Madrídingar náðu hins vegar ekki að skora mark á gestina frá Betis sem eru að berjast í neðri hluta töflunnar. Eden Hazard kom reyndar boltanum í netið snemma leiks en hann var dæmdur rangstæður og markið því ógilt. Heimamenn voru mikið meira með boltann og áttu nokkur góð tækifæri, en þau telja ekki nema boltinn fari í netið, það gerði hann ekki og markalaust jafntefli niðurstaðan á Santiago Bernabeu. Barcelona og Real Madrid eru því jöfn að stigum, með 22 stig, á toppi deildarinnar, einu stigi á undan Atletico Madrid og Sevilla sem hafa þó bæði leikið einum fleiri leik. Spænski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti