Í nýútkominni og afar forvitnilegri bók þeirra Aðalsteins Kjartanssonar, Helga Seljan og Stefáns Aðalsteins Drengssonar „Ekkert að fela – á slóð Samherja í Namibíu“ segir að Aðalsteinn Helgason hafi sig hvergi hrært án þess að fyrir lægi samþykki forstjóra fyrirtækisins, Þorsteins Más Baldvinssonar. Reyndar er því svo lýst, og vitnað í skýrslu KPMG frá árinu 2014 þar um, að Þorsteinn hafi stýrt fyrirtækinu í smáu og stóru. Jafnt starfsemi á Íslandi sem og dótturfyrirtækjum á erlendri grundu sem svo þýði í raun að lögum samkvæmt beri þeim fyrirtækjum að greiða skatt á Íslandi.
Í bókinni er greint frá því að Aðalsteinn hafi staðið þétt við hlið forstjórans.

Aðalsteinn er nú kominn á eftirlaun eftir kvartöld í þjónustu Samherja. Þegar hann var kvaddur árið 2016 féllu þau orð í kveðju frá eigendum Samherja að störf hans hafi haft grundvallarþýðingu fyrir fyrirtækið.
„Þú ættir að ræða þetta við kallinn“
„Þar er einnig sérstaklega getið um lundarfar og þægilega nærveru Aðalsteins. Í þeim anda grínuðust undirmenn Aðalsteins í Afríku og kölluðu hann Don Alla. Og hinn lauflétti Aðalsteinn spilaði með. Glotti í mesta lagi að ungu mönnunum. Varkár jafnan en þægilegur, að sögn. Ljóntryggur og tók aldrei svo ákvörðun að hún væri ekki borin undir Þorstein Má.“Þess er getið í bókinni, og þá vísað til orða uppljóstrarans Jóhannesar Stefánssonar, sem starfaði með Aðalsteini í Afríku, að Aðalsteinn hafi gjarnan haft á orði:
„Ég held að þú ættir að ræða þetta við kallinn.“

Þriðja manninum líkt við Tom Hagen
Í bókinni kemur fram að landvinningar Samherja í Namibíu hófust í upphafi árs 2011 og fyrir þeim fóru þrír menn: Aðalsteinn Helgason, Jóhannes Stefánsson uppljóstrari og svo Ingvar Júlíusson, tæplega fimmtugur endurskoðandi sem starfað hefur erlendis í fjölda ára.Í bókinni er honum líkt við consiglieri eða fyrir þá sem þekkja trílógíuna The Godfather, Tom Hagen, hægri hönd don Corleone. Hann er frá Þorlákshöfn, útskrifaðist úr viðskiptafræði 2004, starfaði fyrir Baug um tíma en var ráðinn til Samherja eftir hrun.

Harkalegar viðtökur
Það er Forlagið sem gefur bókina út og hefur vakið athygli á því á Facebooksíðu sinni að höfundar ætli að afsala sér öllum greiðslum vegna útgáfunnar og stendur til að þau renni til hjálparstofnunar og mannúðarsamtaka sem beita sér í Afríku.
„Skítlegt eðli sagði einhver. Mér finnst það passa núna hjá þessum mönnum. Ætla að græða fyrir jólin, og ekki búið að kanna þetta allt og dæma en bókin er tilbúin,“ segir ein þeirra sem setur athugasemd á Fb-vegg Forlagsins. Bálreið.
Annar spyr hvort búið sé að dæma í málinu meðan enn einn talar um bókina sem toppinn í lágkúru.
Vísir spurði Egil Örn Jóhannsson framkvæmdastjóra Forlagsins hvort þetta séu viðtökur sem hann vænti en hann segist hafa tekið þá afstöðu að ætla ekki að tjá sig um bókina opinberlega. Hins vegar mun það vera svo að sala bókarinnar fer afar vel af stað.