Skaðaminnkun Frú Ragnheiðar bergmálar í bíó Þórarinn Þórarinsson skrifar 26. nóvember 2019 07:30 Skjólstæðingur leitar til Frú Ragnheiðar í aðdraganda jóla í einni þeirra tæplega sextíu örsagna sem verðlaunaleikstjórinn Rúnar Rúnarsson fléttar saman í sinni nýjustu kvikmynd, Bergmál.
Leikstjórinn og handritshöfundurinn Rúnar Rúnarsson fléttar í sinni nýjustu kvikmynd saman 58 örsögur sem allar eiga sér stað á aðventunni og síðustu dögum ársins 2018 og endurspegla íslenskan veruleika í brotakenndri heild skyndimynda. Eitt þessara spegilbrota sýnir samskipti skjólstæðings og hjúkrunarfræðings í skaðaminnkunarbílnum Frú Ragnheiði. „Þetta er auðvitað leikin sena þar sem reynt er að endurspegla á raunsæjan hátt komu fólks í bílinn til okkar í kringum jólin,“ segir Elísabet Brynjarsdóttir, hjúkrunarfræðingur Frú Ragnheiðar, sem segja má að leiki einhvers konar útgáfu af sjálfri sér í Bergmáli. „Ég er ekki búin að sjá þetta en mæti á styrktarsýninguna. Ég fékk nokkur skilaboð eftir frumsýninguna um að þetta hefði verið mjög átakanleg en falleg sena og er bara spennt að sjá.“Elísabete Brynjarsdóttir, hjúkrunarfræðingur.Óvæntur jólaglaðningur Elísabet segir að þótt Frú Ragnheiður sé í grunninn nálaskiptiþjónusta með áherslu á skaðaminnkun þá sé mannlegi þátturinn öllum sem að verkefninu koma efstur í huga. „Hann er rosalega mikilvægur hluti af verkefninu okkar og það er ótrúlega fallegt og snertir við okkur í Ragnheiði að leikstjórinn og framleiðendurnir hafi viljað halda sérstaka styrktarsýningu fyrir okkur. Við erum auðvitað bara fjármögnuð á styrkjum og þurfum á öllum peningum að halda og erum að fara að undirbúa jólin en undanfarin ár höfum við verið með jólagjafir í bílnum og dreifum þeim til skjólstæðinga okkar viku fyrir jól og á aðfangadag,“ segir Elísabet og bendir á að Ragnheiður ekur alltaf sinn rúnt, sex sinnum í viku, virka daga sem og stórhátíðisdaga. „Þau vissu að Frú Ragnheiður keyrir um jólin og aðstoðar skjólstæðinga og þess vegna hugsuðu þau til okkar þar sem myndin á í raun að endurspegla jólin frá mismunandi sjónarhornum.“ Frú Ragnheiður dreifir einnig mat og hlýjum fatnaði til skjólstæðinga sinna en Elísabet segir velvilja fjölda fólks og fyrirtækja úti um allan bæ gera þeim þetta mögulegt. „Við erum með þessar jólagjafir og mikið um góðhjartað fólk úti um allan bæ sem er að prjóna fyrir okkur þannig að við gefum húfur, vettlinga, sokka og svona.“ Að ógleymdum þessum „félagsskap, sálræna stuðningi og mannlegu nánd sem allir þurfa“.Einstakur hópur á ferð „Þessi hugmynd kviknaði fyrst í raun bara alveg strax eftir tökurnar,“ segir Lilja Ósk Snorradóttir, framleiðandi hjá Pegasus, um sýninguna á morgun. „Þetta blundaði svo bara í okkur þangað til við sáum fyrsta klippið og fundum að við bara yrðum að gera þetta. Vegna þess að okkur fannst senan svo sterk og hún sat svo í okkur,“ segir Lilja sem telur óhætt að fullyrða að aldrei áður hafi verið gerð „önnur eins kvikmynd, hvað þá jólamynd“, og Bergmál. „Jólin eru ótrúlega sérstakur og ð mínu mati bara yndislegur tími hjá okkur í Frú Ragnheiði,“ segir Elísabet þegar talið berst að þeim um um það bil 100 sjálfboðaliðum em skiptast á að standa vaktina í bílnum. „Við erum með alveg einstakan hóp sem stendur vaktina sama hvaða dagur er og vill allt fyrir skjólstæðingana okkar gera,“ segir Elísabet og bætir við að fyrst og fremst treysti heimilislausir og sprautufíklar með fjölþættan vímuefnavanda á Frú Ragnheiði.Harmurinn í fegurðinni Jólavaktir Frú Ragnheiðar vega þungt í huga Elísabetar vegna þess að skortur og sárar tilfinningar hafa tilhneigingu til að magnast í birtu jólaljósanna. „Þess vegna finnst mér svo dýrmætt að sjálf boðaliðarnir okkar séu tilbúnir að standa vaktina óháð því hvaða dagur er til þess að geta veitt þessa mannlegu nánd og sálrænan stuðning. Jólin eru einstakur tími og ég kemst alla vega ekki í jólaskap án þess að taka vakt í Frúnni í kringum jólin.“ Elísabet segir tilfinningatenginguna milli sjálfboðaliðanna og skjólstæðinganna mögulega vegna þess einstaka trausts sem Rauði krossinn og Frú Ragnheiður hafa náð að byggja upp í gegnum árin. „Skjólstæðingarnir okkar treysta okkur mjög vel og það er alveg ómetanlegt og dýrmætt fyrir verkefnið okkar. Við gætum náttúrlega ekki starfað án þess að hafa traust þeirra. Þau vilja leita til okkar á sínum forsendum og það er svo dýrmætt í öllum þessum samskiptum, sérstaklega einmitt svona í kringum jólin þegar erfiðar aðstæður geta mögulega oft orðið ennþá erfiðari í ljósi þess hvernig allt á að vera.“Fyrirsögn fréttarinnar hefur verið uppfærð.
Birtist í Fréttablaðinu Fíkn Mest lesið Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Lífið Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið John Grant tók Eldborg með áhlaupi — en hjartað vann stríðið Gagnrýni Tónlistin bjargráð eftir erfiða kulnun Tónlist Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak Menning Veggjakrotað með kandýfloss á sýningunni „Hæhóogjibbíjei” Menning Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Lífið „Ég er skíthræddur“ Tónlist Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Lífið „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Lífið Fleiri fréttir Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Sjá meira