Allt að 15 stiga hiti á morgun Kristín Ólafsdóttir skrifar 1. desember 2019 07:48 Jólamánuðurinn er genginn í garð og fyrstu dagana virðast ætla að fylgja honum töluverð hlýindi, auk hvassviðris og rigningar víða á landinu. Vísir/vilhelm
Víðáttumikið lægðakerfi norður af Nýfundnalandi sendir nú regnsvæði og sunnanstrekking til landsins. Á morgun er útlit fyrir að enn bæti í vind og rigningu, auk þess sem það heldur áfram að hlýna. Þannig gæti hiti náð allt að fimmtán stigum „þar sem best lætur í hnjúkaþey norðanlands“, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Í dag gæti vindur jafnframt magnast töluvert staðbundið á norðanverðu Snæfellsnesi. Undir kvöld og fram að miðnætti má búast við hvassviðri þar eða jafnvel stormi í vindstrengjum. Norðaustan og austanlands verður vindur hægur í dag og þurrt að mestu. Hitinn þokast svo upp á við með sunnanáttinni og í kvöld má búast við um þremur til átta stigum. Hiti verður þó um frostmark norðaustantil. Á morgun hlýnar svo enn frekar, eins og áður sagði.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ mánudag:Sunnan og suðvestan 13-20 m/s með rigningu og súld, en úrkomulítið á Austurlandi. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast norðanlands.Á þriðjudag:Suðlæg átt og rigning, en þurrt að kalla norðaustanlands. Vestlægari um kvöldið á vestanverðu landinu með éljum og kólnar.Á miðvikudag:Ákveðin suðvestan- og vestanátt með éljagangi, en bjartviðri norðaustan- og austanlands. Kólnandi, frost 0 til 5 stig seinnipartinn.Á fimmtudag:Vestlæg átt og dálítil él, en þurrt á Suðausturlandi og Austfjörðum. Frost 0 til 10 stig, mest inn til landsins.Á föstudag:Útlit fyrir norðanátt með snjókomu eða éljum, en léttskýjað sunnan- og vestanlands. Frost 0 til 5 stig.Á laugardag:Snýst líklega í suðaustanátt og þykknar upp á Suður- og Vesturlandi, en léttir til fyrir norðan og austan
Veður Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira