Tónlistarmaðurinn Ingi Bauer sem er þekktur fyrir lög á borð við Upp til Hópa og Áttavilltur og sleðalestina, sendi ásamt Séra Bjössa frá sér lagið Dicks í byrjun sumars.
Lagið hefur setið lengi á vinsældalista FM957 og náði nýlega einni milljón spilana á Spotify og í tilefni af því ákvað Ingi Bauer að sýna fylgjendum sínum á YouTube hvernig lagið var búið til.
„Ég kynntist Séra Bjössa þegar þeir voru að mjólka kýr á Egilsstöðum,“ segir Ingi Bauer meðal annars í myndbandinu.
Ingi fór nýlega af stað með þáttinn Ice Cold í beinni sem er sýndur á Youtube síðu Ice Cold og bjó til myndband þar sem hann fer yfir hvernig lagið var búið til, söguna á bakvið það og hvaða hljóð eru notuð.
Séra Bjössi hefur notið mikilla vinsælda uppá síðkastið og spiluðu m.a. á stóra sviðinu á þjóðhátíð sl. sumar.
Hér að neðan má sjá Séra Bjössa flytja lagið í Eldhúspartýi FM957 í nóvember.