Talið er að maðurinn sem fannst látinn í Núpá við Fossgil laust eftir hádegi í dag sé Leif Magnús Grétarsson Thisland. Hundruð manna hafa leitað Leifs Magnúss síðan hann féll í ána á miðvikudagskvöld. Hann hafði verið að aðstoða bónda við að hreinsa krap frá inntaki en við Núpá er heimarafstöð, lón og stífla.
Leif Magnús er fæddur í Noregi en flutti til Vestmannaeyja sumarið 2011, þá átta ára gamall, eftir erfiða æsku í Noregi.
Norskir miðlar hafa einmitt fjallað ítarlega um leitina í Sölvadal vegna þess að Leif Magnus er hálfur Íslendingur og hálfur Norðmaður. Flutning hans til Íslands árið 2011 bar brátt að. Móðir hans var myrt af norskum kærasta sínum í mars það ár. Var kærastinn dæmdur í fimmtán ára fangelsi.
Í framhaldinu fór faðir Leifs Magnúsar fram á forræði yfir syni sínum sem norskur dómstóll samþykkti. Flutti hann til Íslands sumarið 2011 þar sem föðurfjölskylda hans býr.
Kom fram í fréttaflutningi á sínum tíma að fjölskyldan væri mjög spennt að fá hann heim.
Flutti til Íslands eftir harmleik í Noregi

Tengdar fréttir

Heim til Eyja eftir harmleik í Noregi
„Þetta er hræðilegur harmleikur,“ segir Óskar P. Friðriksson, sem er á leið til Noregs á laugardag ásamt fjölskyldu sinni til þess að hitta barnabarn sitt, Leif Magnús Grétarsson, átta ára. Móðir Leifs Magnúsar, hin 28 ára gamla Heidi Thisland Jensen, var myrt aðfaranótt sunnudagsins í bænum Mandal í Noregi.

Nafn drengsins sem leitað er við Núpá
Drengurinn sem leitað er að í Núpá heitir Leif Magnus Grétarsson Thisland.

Besta gjöfin að fá hann heim
"Ég hef ekki fengið betri afmælisgjöf um ævina,“ segir Óskar P. Friðriksson, afi Leifs Magnúsar Grétarssonar, átta ára. Leif Magnús flytur til föðurfjölskyldu sinnar í Vestmannaeyjum frá Noregi 19. júní næstkomandi, á afmælisdegi afa síns.

Fundu lík í Núpá
Laust eftir hádegi tilkynnti áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar að búið væri að finna lík í Núpá við Fossgil. Líkið er talið vera af piltinum Leif Magnus Grétarssyni Thisland sem saknað hefur verið frá því á miðvikudagskvöld.