Tottenham kom til baka og vann 2-1 sigur á Brighton í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Dele Alli skoraði sigurmark Spurs á 72. mínútu. Með sigrinum komst Tottenham upp í 5. sæti deildarinnar. Brighton, sem er án sigurs í síðustu fjórum leikjum, er í 13. sætinu.
Brighton var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og náði forystunni á 37. mínútu þegar Adam Webster skallaði aukaspyrnu Pascals Groß í netið. Staðan í hálfleik var 0-1, gestunum frá Brighton í vil.
Tottenham-menn mættu ákveðnir til leiks í seinni hálfleik og á 53. mínútu jafnaði Harry Kane. Hann fylgdi þá eftir skoti sínu sem Mat Ryan varði. Kane skoraði einnig í fyrri hálfleik en markið var dæmt af vegna rangstöðu.
Kane hefur nú skorað átta mörk í ensku úrvalsdeildinni á öðrum degi jóla. Aðeins Robbie Fowler hefur skorað fleiri (9).
Most @premierleague goals on Boxing Day
— Sky Sports Statto (@SkySportsStatto) December 26, 2019
Robbie Fowler in 10 games
HARRY KANE in 5 games
Robbie Keane in 9 games
Alan Shearer in 11 games pic.twitter.com/vmxjExSTfH
Á 72. mínútu átti varamaðurinn Christian Eriksen frábæra sendingu á Serge Aurier sem sendi fyrir á Alli sem skoraði sigurmark Tottenham með góðu skoti. Lokatölur 2-1, Spurs í vil.