Innlent

Norð­austan­strekkingur nokkuð víða og él á víð og dreif

Atli Ísleifsson skrifar
Spákort Veðurstofunnar fyrir klukkan 14, eins og það leit út í morgun.
Spákort Veðurstofunnar fyrir klukkan 14, eins og það leit út í morgun. Veðurstofan

Veðurstofan spáir norðaustanstrekkingi, fimm til fimmtán metrum á sekúndu, þar sem hvassast verður á Vestfjörðum og við suðurströndina í kvöld. Sömuleiðis má búast við éljum á víð og dreif, en líklega verður þó þurrt um landið suðvestanvert.

Spáin gerir ráð fyrir að það hvessi í nótt þar sem verður 15 til 25 metrar á sekúndu í fyrramálið, hvassast syðst. Áfram verður þurrt að mestu á Suðvestur- og Vesturlandi, en él í öðrum landshlutum. Frost um allt land.

Gular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir Suðurland, Suðausturland og Miðhálendið á morgun.

„Dregur svo dálítið úr vindi á laugardagskvöld en síðdegis á sunnudag fer lægðin loksins að reyna landgöngu og fer yfir landið seint á sunnudag og á mánudag. Hlánar víða á láglendi og lægir í kjölfar skilanna en ekki er um mjög mikil hlýindi að ræða með þessari lægð. Svo taka við rólegri dagar og hiti nálægt frostmarki,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar.

Gular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir Suðurland, Suðausturland og Miðhálendið á morgun.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag: Gengur í norðaustan 13-23 m/s, hvassast og snjókoma syðst, en annars víða él og skafrenningur. Frost 0 til 10 stig, minnst við S-ströndina.

Á sunnudag: Norðaustanstormur og snjókoma eða skafrenningur, mest úrkoma S- og A-til. Dregur úr frosti.

Á mánudag: Norðaustanstormur með hríðarveðri á Vestfjörðum, annars mun hægari austlæg átt og rigning eða slydda með köflum. Suðvestanátt og skúrir eða él SV-til um kvöldið. Hiti 0 til 7 stig, mildast syðst.

Á þriðjudag: Austlæg átt, snjókoma eða slydda með köflum og hiti nálægt frostamarki.

Á miðvikudag: Breytilega átt með dálitlum éljum víða um land. Heldur svalara.

Á fimmtudag: Útlit fyrir suðvestlæga átt með skúrum eða éljum um landið V-vert, en þurrt fyrir austan. Allvíða frostlaust á láglendi að deginum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×