Skoðun

Hetjurnar í framlínunni

Stefán Pétursson skrifar

Þær stórkostlegu hetjur, sem nú standa í fremstu víglínu baráttunnar við hinn útsmogna og lævísa óþokka Covid-19, eru svo sannarlega skjöldur okkar og sverð. Með æðruleysi og fórnfýsi leggja þau allt í sölurnar fyrir samfélagið og leggja heilsu sína og velferð í hættu allan sólarhringinn í þeirri vissu og trú, að sigur muni vinnast að lokum.

Heilbrigðisstéttirnar sem nú berjast sem aldrei fyrr við þennan vágest eiga svo sannarlega skilið þakkir okkar.

Mig langar að koma því á framfæri hér, um leið og ég þakka öllu starfsfólki heilbrigðiskerfisins fyrir þeirra ómetanlega starf, að sú starfstétt sem ég tilheyri fær mínar allra bestu kveðjur fyrir það gríðarlega mikilvæga og fórnfúsa starf sem hún sinnir. Fólkinu í utanspítalaþjónustu á Íslandi, sem sinnir veikum og slösuðum allan sólarhringinn alla daga ársins, færi ég mínar innilegustu þakkir og heillaóskir.

Ef ykkar nyti ekki við núna, sem endranær, er hætt við að allt önnur sviðsmynd væri uppi á teningnum.

Slökkviliðs og sjúkraflutningamenn eru oftar en ekki fyrsta snerting veikra og slasaðra við heilbrigðiskerfið og fyrstu samskipti við fagaðila innan þess kerfis.

Gríðarlegt álag er á slökkviliðs og sjúkraflutningamönnum um þessar mundir, eins og öðrum í heilbrigðiskerfinu, og því vil ég ítreka þakkir mínar, ykkur öllum til handa, fyrir að standa vaktina og hrósa ykkur fyrir fagleg og fumlaus vinnubrögð. Takk fyrir að standa í broddi fylkingar og mæta vágestinum af einurð, ákveðni og fagmennsku. Þið eruð hetjurnar og fagfólkið sem takið fyrsta höggið. Án ykkar væri heilbrigðiskerfið og utanspítalaþjónusta á Íslandi mun verr statt.

Nú ríður á að klára sem fyrst kjarasamninga við þær heilbrigðisstéttir sem enn er ósamið við og má þar fyrst nefna hjúkrunarfræðinga, sem standa í eldlínunni nú sem fyrr. Eins er vert að minnast á að enn er ósamið við sjúkraflutningamenn sem starfa hjá ríkinu, en þó virðist sem eitthvað sé að rofa til á þeim vettvangi, sem betur fer.

Að öllum öðrum heilbrigðisstéttum ólöstuðum er það fólkið í utanspítalaþjónustunni, fólkið á sjúkrabílunum, slökkviliðs og sjúkraflutningamenn þessa lands sem eru í fremstu víglínu baráttunnar og í afar mikilli nálægð við ógnvaldinn Covid-19. Þessu fólki megum við ekki gleyma því án þeirra værum við mun verr stödd í baráttunni.

Kæru félagar í Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, takk fyrir ykkar framlag og takk fyrir að vera til staðar fyrir okkur öll.

Rétt er að taka fram að eftir að þessi grein var skrifuð var samið við sjúkraflutningamenn hjá ríkinu. Fer samningurinn nú í kynningu meðal félagsmanna og í framhaldinu verður kosið um hann.

Höfundur er sjúkraflutningamaður og fyrrverandi formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×