Þáttur dagsins í #höldumáfram er með Frederik Aegidius, einum fremsta CrossFit-ara heims.
Frederik fer hér yfir nokkar æfingar sem hægt er að gera heima hjá sér. Hann stillir upp krefjandi WOD-æfingum.
Æfingin hentar vel þeim sem stunda CrossFit. Hún er samt tiltörulega einföld og ætti hver sem er að geta gert hana því hún er tiltörulega einföld.
Frederik notar meðal annars ketilbjöllu. Ef fólk á ekki bjöllu þá er hægt að nota eitthvað annað sem vigtar örlítið, til dæmis bakpoki með nokkrum bókum í.
Frederik Aegidius er einn af fremstu íþrótamönnum í CrossFit í heiminum og hefur fimm sinnum keppt á heimsleikunum í CrossFit. Hann er Íslendingum vel kunnugur þar sem hann er einnig unnusti Annie Mistar.
Verkefnið #höldumáfram snýr að því að hvetja fólk til að hugsa um líkamlega og andlega heilsu hvort sem það er að taka æfingu, fara í göngutúr, hugleiða eða hvað sem skiptir hvern og einn máli. En þessa dagana þarf fólk að gera það heima eða úti í náttúrunni. Sjá má fleiri æfingar hér fyrir neðan.
#höldumáfram er herferð á vegum Nocco. Í henni sýnir íþróttafólk og þjálfarar sniðugar æfingar. Einnig er fólk hvatt til að taka þátt á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #höldumáfram, sýna frá því sem það er að gera en um leið hvetja vini og aðra til að gera slíkt hið sama. Halda áfram að hugsa um sig því líkamleg og andleg heilsa hafa sjaldan skipt jafn miklu máli. Ekki bara fyrir hvern og einn heldur samfélagið í heild.