Skoðun

Ketil­bjalla fyrir þraut­seigju­vöðvann

Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar

Þegar sumarmyndir berast manni frá grænu grasi í skandinavíu og svo ekki sé talað um myndir á samfélagsmiðlum af ofur hressu ofurfólki að svitna kolvetnalausu páskaeggjunum sínum í allt of mörgum armbeygjum er mikilvægt að muna að þetta gengur allt saman yfir. Brátt munu moskítóflugurnar byrja að bíta Skandinavanna og sá sem gerir margar armbeygjur er ekki fullkominn þó hann hafi verið duglegur í þær 4 sekúndur sem þú gægðist inní lífi hans.

Þetta mun líka ganga yfir er ein af uppáhalds möntrunum mínum og ein af þeim gjöfum sem hugleiðsla hefur fært mér. Þetta er ketilbjallan mín þegar ég þarf að æfa þrautseigjuvöðvann minn. Æfingaprógramið er ekki svona WOD og það þarf ekki að skipta um föt til þess að hefja æfingu. Það eina sem þú þarft að gera er að draga andann djúpt og endurtaka þessi orð: Þetta mun líka ganga yfir.

Það hefur reynt mikið á þennan vöðva hjá mörgum undanfarnar vikur. Það er erfitt að upplifa veikindi, missa jafnvel vinnuna, reka heimaskóla samhliða fullri vinnu eða sjá hagkerfið kólna eins og hraunmola úr eldgosi sem hættir hægt og rólega að vera rauðglóandi og verður kolbikarsvartur.

Fréttir síðustu viku rifjuðu upp fyrir okkur myndir af eldgosinu í Eyjafjallajökli. Þrautseigjuvöðvinn minn hneigir sig fyrir öllu því duglega fólki sem þá mokaði öskunni í burtu til þess að hægt væri að hefja daglegt líf aftur þar sem allt fór á kaf. Það fólk fékk nýjan stað í tilverunni til að miða við. Aðrir hlutir urðu einfaldari í samanburði við það verkefni. Þau komust í gegnum þetta og eru sterkari fyrir vikið.

Það er verið að búa til nýjan viðmiðun fyrir okkur þessar vikurnar. Á þrautseigjunni komumst við í gegnum þetta og horfum síðar til baka og segjum: Sjáðu tindinn þarna fór ég!

Byrjaðu að flexa þrautseigjuvöðvann strax í dag, því það hjálpar. Ekki bara þegar erfiðleikarnir eru við það að draga þig ofan í rauðglóandi hraunflæðið heldur líka þegar þetta allt saman er búið. Þeir sem hafa æft upp ofurstælta þrautseigjuvöðva með þessum hætti eru nefnilega ánægðir með að vera komnir í gegnum erfiðleikana því þeir viðurkenna að þetta hafi verið erfitt, gleðjast yfir því að vera komnir í gegnum erfiðleikana og þakka sínum sínum andlega styrk.

Höfundur er framkvæmdastjóri Flow.




Skoðun

Sjá meira


×