Útlit fyrir austan strekking á landinu en hvassviðri sunnantil Atli Ísleifsson skrifar 9. mars 2020 06:44 Líkur eru á éljum allvíða, en ekki er búist við miklu úrkomumagni á hverjum stað. Vísir/Hanna Andrésdóttir
Útlit er fyrir austan strekking á landinu í dag þar sem vindhraðinn verður tíu til fimmtán metrum á sekúndu. Með suðurströndinni er þó spáð hvassviðri með fimmtán til tuttugu metrum á sekúndu. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Þar segir að vindur á norðaustanverðu landinu verði hægur, þar sem austanáttin nær sér engan veginn á strik. „Líkur eru á éljum allvíða, en ekki er búist við miklu úrkomumagni á hverjum stað. Líklegt er að Vesturland sleppi við úrkomu. Áfram er frekar kalt á landinu, jafnvel tveggja stafa frosttölur í innsveitum fyrir norðan. Á morgun bætir heldur í austanáttina og ofankomuna, áfram verður þó Vesturland úrkomulaust að mestu. Hitinn mjakast uppávið og fer yfir frostmark syðst. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Austan 13-20 m/s og snjókoma með köflum, en 18-23 og slydda með suðurströndinni. Úrkomulaust að mestu á Vesturlandi. Hiti kringum frostmark. Á miðvikudag: Norðaustan 13-20. Úrkomulítið sunnan heiða, en snjókoma annars staðar og talsverð ofankoma norðaustantil á landinu. Hiti um og undir frostmarki. Á fimmtudag: Norðaustanátt og dálítil él norðan- og austanlands, en annars bjartviðri. Suðlægari síðdegis á suðvestanverðu landinu og líkur á snjókomu þar. Frost 1 til 8 stig. Á föstudag: Austlæg átt og snjókoma víða um land, hiti breytist lítið. Á laugardag: Norðanátt með snjókomu eða éljum, en léttir til á Suður- og Vesturlandi. Herðir á frosti. Á sunnudag: Austan- og norðaustanátt og bjartviðri, en dálítil él austanlands. Talsvert frost.
Veður Mest lesið Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Fleiri fréttir „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolinn bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Sjá meira