Ég á þetta ég má þetta Arnar Atlason skrifar 22. maí 2020 14:00 Katrín ég trúi þessu ekki! Ýmsar vendingar hafa orðið að undanförnu í íslenskum sjávarútvegi. Sumar með algjörum ólíkindum. Þó að einhverju leiti þannig að fólk sem þekkir til hefði ekki átt að láta þær koma sér á óvart vegna einstaklinganna sem ráða för. Auðlindarákvæði er ekki komið í stjórnarskrá og ólíklegt að núverandi ríkistjórn ætli að koma því þangað af einhverri alvöru, þrátt fyrir yfirlýsingar um hið gagnstæða. Þetta má ! Frumvarp um tengda aðila er komið fram sem hefur það að markmiði að minnka líkur á markaðsbresti í formi fákeppni. Það er svo veikt að það virðist heldur styrkja þróun í átt að fákeppni heldur en veikja. Í greinargerð með því er talað um “að aflaheimildir sem aðilar ráði yfir njóti verndar eignaréttarákvæðis 72. Gr. Stjórnarskrárinnar sem atvinnuréttindi.” Þetta má! Strandveiðar hafa verið við lýði í 10 ár á Íslandi. Veiðarnar eru undanskildar hefðbundnum veiðiheimildum en takmarkaðar á annan hátt. Þær hafa verið besta leið til nýliðunar í greininni sem lengi hefur sést. Auk þess að viðhalda framboði á ferskum fiski á þeim tíma sem þörf er mikil. Nú á tímum gríðarlegs atvinnuleysis vegna alheimsfaraldurs, hefur ásókn í þær aukist. Þá grípur ráðherra málaflokksins til þess ráðs að draga úr veiðunum, heldur en auka. Þó svo þær séu kjörin vettvangur til að slá á atvinnuleysi. Þetta má! Stærstu handhafar veiðiheimilda í landinu gefa þjóðinni ítrekað langt nef með hrókeringumum sínum. Gefa með því í skyn að þeir séu yfir lög og siðferði hafin. Gefa börnum sínum það sem þeir ekki eiga. Á meðan aðrir heimta gegnsæi en á sama tíma frið frá Samkeppnisyfirvöldum. Þetta má ! Atvinnuleysi í landinu er í sögulegu hámarki, samdráttur áætlaður sá mesti frá árinu 1920. Fyrir liggur að lönd í kringum okkur hafa gripið til ráða til að vernda eigin þegna og þeirra störf. Hvað gerir sjávarútvegsráðherrann okkar ? Hann gefur útgerðum aukna heimild til að flytja heimildir milli ára. Það þýðir í raun lægri tekjur fyrir þjóðina til skamms tíma en hærri tekjur fyrir útgerðina til lengri tíma. Meira atvinnuleysi en meiri tekjur fyrir útgerðina. Í stað þess að auka veiðar, þó svo verð sé lágt, minnka með því atvinnuleysi. Þá eru hagsmunir handhafa veiðiheimildanna enn látnir ráða för. Þetta má ! Á sama tíma og atvinnuleysið er í hámarki og leitað er logandi ljósi að tækifærum til nýsköpunar. Eru stærstu sjávarútvegsfyrirtæki landsins að koma í veg fyrir nýsköpun. Á síðasta ári var fiskur fluttur til vinnslu erlendis á vegum íslenskra fyrirtækja í stórum stíl. Þannig fóru tæp 50 þúsund tonn úr landi. Þetta orsakar minni hag þjóðarinnar en aukin hag útgerðarinnar. Þetta má ! Með því að tryggja aukna verðmætasköpun úr íslenskum fiski, í stað þess að flytja hann út sem verðlítið hráefni, felst eitt stærsta tækifæri til nýsköpunar sem ráðamenn þjóðarinnar geta gripið til. Þetta blasir við en.. Má það ? Að lokum eru hér örfáir punktar úr stefnu VG í sjávarútvegsmálum, sem er prýðileg lesning sem hlutaðeigandi ættu að lesa. „Allar auðlindir, hvort sem er til lands eða sjávar, eiga að vera ævarandi og óframseljanlegar eignir íslensku þjóðarinnar. Þjóðinni ber að njóta arðs af allri auðlindanýtingu. Nýtingin skal byggjast á jafnræði til þátttöku, nærast á nýliðun og vera í stöðugu og gagnkvæmu sambandi við byggðaþróun. VG vill að útfærsla á stjórn fiskveiða stýrist af hagsmunum allra byggða í landinu og hafi að leiðarljósi sátt, byggðafestu og atvinnuöryggi. Skapa þarf forsendur í kerfinu fyrir nýliðun, að þeir sem vilja geti sótt sjóinn og byggt upp fyrirtæki í sjávarútvegi í samkeppni við önnur. Meginregla í auðlindanýtingu er að þjóðin öll á auðlindir til lands og sjávar og henni ber að greiða afgjald fyrir nýtinguna. Vinstri græn leggja áherslu á afdráttarlaust auðlindaákvæði í stjórnarskrá þar sem eignarhald þjóðarinnar á auðlindunum er skýrt. Verðmyndun á afla mun því óhjákvæmilega taka mið af veiðigjaldi, en þeir sem hyggjast byggja upp greinina og borga sjómönnum góð laun, munu öðlast samkeppnisforskot á aðra. VG vill að arður og atvinna af sjávarútvegi dreifist sem best um samfélagið en lendi ekki í höndum fárra útgerðarrisa sem hugsa bara um stundargróða og láta sér samfélagslega ábyrgð í léttu rúmi liggja eins og mýmörg dæmi sanna, fyrir utan það að gróðinn lendir oftar en ekki í einhverjum skattaskjólum. Arðurinn af veiðigjöldum skal að hluta renna til viðkomandi sveitarfélaga.” Höfundur er formaður Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda (SFÚ). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arnar Atlason Sjávarútvegur Mest lesið Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug skrifar Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Verum góð við hvort annað Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Umburðarlyndið sem geltir Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir skrifar Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson skrifar Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Svíkjum ekki gerða samninga Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Danir ætla að verja Grænland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Já eða nei? Kosningar 29. ágúst 2026 Grétar H. Óskarsson skrifar Skoðun Þegar innviðaskuldin gjaldfellir samfélagssáttmálann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Ekki sjá eftir atkvæðinu þínu! Arnar Steinn Þórarinsson skrifar Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Í kjörklefanum erum við ein Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Sævar Helgi horfir heima Atli Viðar Thorstensen skrifar Skoðun Skiptir stærðin máli? Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Samvinna auðlindagreina styrkir allra hag Þorsteinn Másson skrifar Skoðun Ekki ert þú nú mikill maður Kristján Loftsson Kristján Logason skrifar Skoðun Spyrjið ykkur: Fyrir hvern vinnur íslenska krónan? Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Þjóðarvarnarráðið hefur verið kallað saman af minna tilefni! Davíð Bergmann skrifar Skoðun Orðspor og ímynd bíður hnekki Haukur Hinriksson skrifar Skoðun Stafrænt fullveldi er ekki frönsk sérviska Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Gervigreind á ekki að hugsa fyrir okkur Helgi S. Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar
Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar