Mikill hugur var í félagsmönnum í Flugfreyjufélagi Íslands (FFÍ) á fjórum fundum í dag þar sem farið var yfir síðustu tilboð í kjaradeilu félagsmanna og Icelandair. Þá sendi samninganefnd félagsins frá sér tilkynningu þar sem kemur fram meðallaun félagsmanna séu nú þegar undir meðallaunum í landinu og félagsmenn hafi áhyggjur af stöðu mála, af óbilgirni samninganefndar Icelandair. Þá kemur fram að kaupmáttur félagsmanna FFÍ hafi rýrnað og sé minni en almennt gerist.
Fram hefur komið að lokatilboð Icelandair feli í sér 5,7 % hækkun en lægstu laun hækki um 12% þá er farið fram á 5-20% meira vinnuframlag.

Meðallaun flugfreyja og flugþjóna eru núna samkvæmt upplýsingum frá Icelandair 520 þúsund krónur á mánuði en yfirflugfreyjur eru með 740 þúsund. Innifalið í þessum launum er bifreiða-og skóstyrkur og sölulaun. Mánaðarlegir dagpeningar um 140.000 og önnur kjör eru frí gisting ááfangastað, hressing fyrir flug og akstur til og frá vinnu.

Guðlaug Líney Jóhannsdóttir formaður Flugfreyjufélags Íslands segir vilja til að mæta félaginu.
„Það er verið að bjóða launahækkanir en umfram vinnuframlag um 5-20% þannig að í enda dags er þetta launaskerðing. Það er gríðarleg samstaða meðal flugfreyja- og þjóna um að halda áfram baráttunni. Við erum áfram með ríkan samningsvilja og til í að mæta félaginu í þessum erfiðleikum,“ segir Guðlaug.
Forsvarsfólk Icelandair hefur sagt að þrátt fyrir þessar breytingar á launakjörum séu flugfreyjur og þjónar með ein bestu kjör sem þekkjast hjá sambærilegum flugfélögum á Vesturlöndum. Því hafnar Guðlaug alfarið.
„Við erum aðilar í norrænum og evrópskum samtökum stéttarfélaga og höfum þar aðgang að sambærilegum kjarasamningi og við erum með og ég vísa þessu alfarið á bug að við séum langt yfir það sem gengur og gerist hjá flugfélögum sem við berum okkur saman við,“ segir Guðlaug.
„Viljum ekki gjaldfella starfið okkar“
Baráttuhugur var hjá flugfreyjum- og þjónum sem voru á fundum í dag á Hótel Hilton.
Heiðrún Hauksdóttir hefur starfað sem flugfreyja hjá Icelandair í 25 ár.
„Ég hef aldrei séð svona mikla samstöðu í hópnum. Það er auðvitað ánægjulegt að Icelandair ætli ekki lengur að bjóða lágmarkslaun uppá 198 þúsund krónur á mánuði fyrir utan vaktaálag sem var punkturinn hjá félaginu þar til á miðvikudag,“ segir Heiðrún.
Guðný Jóna Einarsdóttir hefur unnið lengi hjá félaginu og starfar sem yfirflugfreyja.
„Mér líst ekkert rosalega vel á stöðuna en ég er aðeins bjartsýnni en ég hef verið. Við þurfum náttúrulega að gefa aðeins eftir en viljum ekki gjaldfella starfið okkar, mér þykir vænt um þetta starf,“ segir Guðný.
Hreindís Ylfa Garðarsdóttir Hólm hefur starfað í þrjú sumur sem flugfreyja.
„Það eru allir hér vongóðir um að þetta leysist okkur þykir vænt um félagið og starfið okkar en við viljum ekki koma til baka á hvaða forsendum sem er,“ segir Hreindís.
Vilhjálmur Þór Davíðsson flugþjónn hefur starfað hjá félaginu í 8 ár.
„Mér þykir svo sannarlega vænt um þetta flugfélag. Maður er búinn að gefa allt sem maður á af hjarta og sál þannig að þetta er snúin staða hvað það varðar. Ég vil að Icelandair hlusti á okkur og okkar stéttarfélag sem er með okkur 120% á bak við sig,“ segir Vilhjálmur.