Bongó í bænum en varað við veðri undir Vatnajökli Vésteinn Örn Pétursson skrifar 23. maí 2020 08:14 Gert er ráð fyrir nokkuð góðu veðri á höfuðborgarsvæðinu í dag. Vísir/Vilhelm
Hiti gæti náð allt að 18 gráðum á höfuðborgarsvæðinu í dag. Gul veðurviðvörun er nú í gildi á Suðausturlandi. Gert er ráð fyrir norðan hvassviðri undir Vatnajökli fyrri hluta dagsins í dag og er gul veðurviðvörun í gildi fyrir Suðausturland til klukkan 13. Þá er búist við slyddu eða snjókomu á heiðum austast á landinu fram eftir degi og því verður færð ekki með besta móti á þeim slóðum. Norðan og norðaustan til verða á bilinu 5-13 metrar á sekúndu. Bjart verður sunnan- og vestanlands, en skýjað og rigning eða slydda með köflum um landið norðaustanvert. Eftir hádegi dregur smám saman úr vindi og styttir upp norðaustanlands. Hiti á Suður- og Suðvesturlandi verður á bilinu 11-18 stig, en 2-8 á Norðaustur- og Austurlandi. Veðurhorfur næstu daga, samkvæmt vef Veðurstofu Íslands: Sunnudagur:Suðaustan 10-18 m/s, hvassast vestantil. Víða rigning, talsverð sunnanlands, en lengst af þurrt norðaustantil. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast á Norðurlandi. Dregur úr úrkomu og lægir um kvöldið. Mánudagur:Sunnan og suðvestan 10-18. Rigning og hiti 6 til 11 stig, en þurrt að kalla norðaustanlands og hiti að 15 stigum. Þriðjudagur:Suðvestan 8-13 og skúrir, en rofar til um landið austanvert. Hiti 6 til 11 stig. Miðvikudagur:Sunnan 10-15 og rigning, en úrkomulítið norðaustantil. Hiti 7 til 12 stig. Fimmtudagur:Suðlæg eða breytileg átt og rigning í flestum landshlutum. Hiti breytist lítið. Föstudagur:Útlit fyrir suðvestanátt og skúrir, en þurrt og bjart veður austanlands.
Mest lesið Lést í sprengingunni Innlent Robert Mueller er látinn Erlent Dapurlegt að fylgjast með hægriflokkum sem sameinast á jaðrinum Innlent Lögregla metur ógn af erlendum áhrifum á ESB-atkvæðagreiðslu Innlent Boða lokanir á hringveginum vegna veðurs Innlent Guðrún um Þorgerði: „Yfirlæti hefur ekki reynst henni góður ráðgjafi“ Innlent Skekkja hækki iðgjöld og kosti samfélagið milljarða Innlent Fríhöfnin gjörsamlega galtóm Innlent Íhugar að draga úr hernaði í Íran Erlent Viðvaranir að falla úr gildi en meira óveður í nánd Veður Fleiri fréttir Viðvaranir að falla úr gildi en meira óveður í nánd Skammt stórra högga á milli Gular viðvaranir um allt vestanvert landið til morguns Svæði rýmt á Ísafirði og beðið eftir illviðri Hvassviðri og talsverð rigning Holtavörðuheiði lokað á miðnætti og tvísýnt um Öxnadalsheiði Víða hægir vindar en hvessir í kvöld Enn viðvaranir og óvissustig vegna snjóflóðahættu Veðurviðvaranir vegna sterkra hviða og mikillar snjókomu Holtavörðuheiðin opin á ný Bætir í norðaustanáttina að nýju Loka heiðinni og opna fjöldahjálparstöð: Biðja „ALLA“ um að halda sig heima Önnur rúta fór út af og Hringvegi lokað að hluta „Blint í stórhríð á Vestfjörðum“ Gular viðvaranir á norðvesturhorninu: Rýma atvinnuhúsnæði og loka vegum Hvessir á mestöllu landinu í kvöld Stífri norðanátt beint til landsins og vegir lokaðir Reiknað með stormi vestantil og hríðarviðvaranir í gildi Færð geti víða spillst hratt Él og slydduél í dag og önnur lægð á morgun Eldingu laust niður á höfuðborgarsvæðinu Gul viðvörun og enn líkur á eldingum Varað við þrumuveðri með tíðum eldingum Kröpp lægð yfir landinu og úrkoman blönduð Gular veðurviðvaranir í kortunum Köldu lofti beint til landsins Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Ört dýpkandi lægð á leiðinni og appelsínugular viðvaranir Appelsínugul viðvörun á morgun Vara við stórhríð á Austurlandi Sjá meira