Veður

Nætur­frost víða

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Þeir sem eru snemma á ferðinni gætu þurft að skafa rúðurnar.
Þeir sem eru snemma á ferðinni gætu þurft að skafa rúðurnar. Vísir/Getty

Kraftlitlar smálægðir eru á sveimi í kringum landið og verður því áttin breytileg í dag samkvæmt spá Veðurstofu Íslands. Það frysti víða í nótt.

Víða verður bjart í dag en stöku skúrir suðaustantil og við vesturströndina í kvöld. Hiti verður á bilinu tvö til átta stig yfir daginn en allvíða eru líkur á næturfrosti.

Á morgun er búist við suðvestlægri átt og dálitlum skúrum eða slydduéli. Hins vegar verður þurrt og bjart á austanverðu landinu fram eftir degi.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag:

Suðvestlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og dálitlar skúrir eða slydduél, en þurrt og bjart á austanverðu landinu fram eftir degi. Hiti 2 til 8 stig yfir daginn.

Á fimmtudag:

Suðaustan og austan 8-15, en 13-20 um landið suðvestanvert. Víða rigning, og talsverð úrkoma suðaustantil, en væta með köflum á Norðurlandi. Hiti 4 til 10 stig. Lægir suðvestanlands síðdegis.

Á föstudag:

Norðaustan 10-18 norðan- og austanlands og rigning, en slydda í innsveitum. Hægari vindur og þurrt að mestu um landið suðvestanvert. Hiti 2 til 9 stig, mildast við suðurströndina.

Á laugardag:

Norðlæg eða breytileg átt og dálítil rigning eða slydda, en þurrt að kalla um landið suðvestanvert. Hiti breytist lítið.

Á sunnudag:

Suðaustan- og austanátt og rigning, en lengst af úrkomulítið norðaustanlands. Heldur hlýnandi.

Á mánudag:

Breytileg átt og víða vætusamt, en slydda eða snjókoma norðvestantil.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×