Fundu stærðarinnar kókaínverksmiðju í reiðskóla Samúel Karl Ólason skrifar 11. ágúst 2020 20:55 Frá aðgerðum lögreglunnar í Hollandi.
Lögreglan í Hollandi fann á föstudaginn stærstu kókaínverksmiðju sem fundist hefur í landinu. Sautján voru handteknir þegar ráðist var til atlögu gegn verksmiðjunni, þar sem allt að 150 til 200 kíló af kókaíni voru framleidd á dag, samkvæmt lögreglunni. Meirihluti þeirra sem voru handteknir eru með kólumbískt ríkisfang. Í yfirlýsingu frá lögreglunni segir Andre van Rijn, yfirmaður lögreglunnar, að götuverðmæti slíks magns af kókaíni sé frá 4,5 milljónum evra til sex milljóna. Sex milljónir evra eru um það bil 966 milljónir króna. Verksmiðjan fannst í gömlum reiðskóla nærri bænum Nijeveen. Þar fundust hundrað kíló af kókaínbasa og mikið af klæðnaði sem hægt er að binda kókaín við svo auðveldara sé að smygla því yfir landamæri. Í yfirlýsingu lögreglunnar segir að framleiðsla fíkniefna og smygl sé umfangsmikið vandamál í Hollandi sem leiði til frekari vandamála í samfélaginu.
Holland Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Alræmdi túristahópurinn tók líka yfir pítsustað Innlent Elduðu úti, óðu yfir vaktstjórann og fylltu matsalinn Innlent Dæmdur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás Innlent Vildi drepa soninn svo hann kæmist til himna Innlent Þurftu að búa í næstu götu við morðingja bróður síns Innlent Tálbeitan var með einkabílstjóra og gisti á Edition Innlent Gefa út gula viðvörun fyrir allt landið vegna norðan áhlaups Veður Sagði að Þórdís myndi undirrita vegna tengsla Bjarna við Hval Innlent Fangi lést á Litla-Hrauni Innlent Fleiri fréttir Aldraður barnalæknir dæmdur í fangelsi fyrir að vanvirða herinn Tugir látnir eftir að bíl var ekið inn í þvögu fólks í Kína Áfrýjun tólf ára fangelsisdóms vegna sjö þúsund króna hafnað Fjölgar hratt í ríkisstjórn Trumps Ganga til kosninga í febrúar Vörpuðu sprengjum á hópa tengda Íran í Sýrlandi Aðeins einn af tíu segist myndu tilkynna ofbeldið að fenginni reynslu „Ákveðinn árangur“ hafi náðst í viðræðum um vopnahlé í Líbanon Fimmtíu þúsund hermenn sagðir undirbúa gagnsókn í Kúrsk Búinn að velja sendiherra og „landamærakeisara“ Sakar Orbán um „ungverskt Watergate-hneyksli“ Vill losna við tálma úr vegi sínum Scholz tilbúinn að láta undan þrýstingi um vantraust Ishiba áfram forsætisráðherra þrátt fyrir kosningatap Ræddi við Pútín og varaði við stigmögnun Hátt í 400 kynlífsmyndböndum lekið í mögulegu samsæri Aldrei jafn margar drónaárásir Trump vann öll sveifluríkin Mestu virkjanaframkvæmdir í sögu Grænlands framundan Óeirðir í Valensía og kallað eftir afsögn ráðamanna „Ég bjóst aldrei við að þetta myndi gerast“ Ákærður fyrir ráðabrugg um að ráða Trump af dögum Fundu morðingja puttaferðalangs fimmtíu árum síðar Samstaða í Færeyjum um að bjóða út Suðureyjargöng Hverfa aftur til fortíðar vegna gervihnattatruflana Rússa Pútín óskar Trump til hamingju Yfirmaður COP29 sagður hafa reynt að selja jarðefnaeldsneyti Ráðist á ísraelska stuðningsmenn í Amsterdam Trump velur starfsmannastjóra úr innstu röðum Spennuþrungin barátta um fulltrúadeildina Sjá meira