Madridingar gerðu góða ferð til Getafe Arnar Geir Halldórsson skrifar 4. janúar 2020 17:00 Varane fagnar marki sínu í dag vísir/getty Real Madrid átti ekki í teljandi vandræðum með Getafe þegar liðin áttust við á heimavelli síðarnefnda liðsins í spænsku úrvalsdeildinni í dag. Madridingar komust í forystu eftir rúmlega hálftíma leik þegar David Soria, markvörður Getafe, varð fyrir því óláni að skora sjálfsmarki. Staðan í leikhléi 0-1 fyrir Real Madrid. Í upphafi síðari hálfleiks tvöfaldaði Raphael Varane forystuna með skallamarki og á lokamínútu uppbótartíma gulltryggði Luka Modric sigurinn þegar hann setti boltann í opið markið eftir góðan undirbúning Federico Valverde. Real Madrid lyftir sér á topp deildarinnar með sigrinum en erkifjendur þeirra í Barcelona geta endurheimt toppsætið í kvöld þegar þeir mæta nágrönnum sínum í Espanyol. Spænski boltinn
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn