Má búast við að morgunumferðin verði hæg Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 28. janúar 2020 07:00 Það hefur snjóað á höfuðborgarsvæðinu og því vissara að fara varlega í umferðinni og taka sér tíma. Þessi mynd er frá Reykjanesbrautinni í morgun. Vísir/Vilhelm
Það hefur gengið á með éljum á höfuðborgarsvæðinu í nótt og mun éljagangurinn halda áfram fram eftir morgni. Það má því búast við því að morgunumferðin verði nokkuð hæg að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Um hádegi snýst hann í norðaustanátt. Víða verða þrír til átta metrar á sekúndu en átta til þrettán með austurströndinni. Það er spáð éljum á Austurlandi og síðar einnig norðanlands en styttir upp sunnan og vestan til á landinu. Víða frostlaust við sjávarsíðuna, einkum með suðurströndinni, en frost tvö til tólf stig inn til landsins, kaldast í innsveitum norðanlands.Veðurhorfur á landinu:Austlæg átt 5-10 m/s og él, en þurrt á Norðurlandi. Snýst í norðaustan 5-13 með morgninum með snjókomu eða éljum, fyrst austast, en styttir upp sunnan- og vestan til.Fremur hæg austlæg átt á morgun en norðaustan 8-13 á Vestfjörðum. Skýjað um norðanvert landið og dálítil él, einkum við ströndina, en bjartviðri syðra. Frost 2 til 10 stig, kaldast í innsveitum norðanlands, en frostlaust við sjávarsíðuna.Á miðvikudag:Norðaustan 8-13 m/s norðvestan til, annars hægari norðlæg átt. Él um norðanvert landið, einkum við ströndina, en bjartviðri syðra. Frost víða 0 til 10 stig, kaldast inn til landsins.Á fimmtudag:Norðaustan 8-13 á Vestfjörðum en hægari austlæg átt annarsstaðar. Stöku él, en þurrt og bjart vestanlands. Frost víða 3 til 8 stig.Á föstudag:Norðlæg átt 5-13 m/s og dálítil él, en léttskýjað um sunnanvert landið. Frost um land allt.Á laugardag:Hæg norðlæg átt, skýjað og lítilsháttar él, en bjartviðri sunnan til á landinu. Kalt í veðri.
Veður Mest lesið Hátt í 400 kynlífsmyndböndum lekið í mögulegu samsæri Erlent „Dapurlegt að stjórnmálafólk loki augunum fyrir stöðunni“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ræddi við Pútín og varaði við stigmögnun Erlent Nýtt myndefni: Sparkað í blóðmerar á íslenskum sveitarbæ Innlent Myndaveisla: Grindvíkingar komu saman ári eftir rýmingu Innlent Björguðu villtum ferðamönnum í Fljótsdal Innlent Nýtt líkan nýjung á Íslandi: VG og Sósíalistar nái ekki á þing og óvissa um Miðflokk Innlent Allt að tuttugu stiga hiti Veður Aldrei jafn margar drónaárásir Erlent Fleiri fréttir Myndaveisla: Grindvíkingar komu saman ári eftir rýmingu Björguðu villtum ferðamönnum í Fljótsdal „Dapurlegt að stjórnmálafólk loki augunum fyrir stöðunni“ „Erfiðir tímar iðulega undanfari betri tíma“ „Ég skildi ekki konuna eina eftir heima í þessum látum“ Þversagnakennt hve lítið sé talað loftslagsmál Sterkar systur á Selfossi keppa á heimsmeistaramóti Nýtt myndefni: Sparkað í blóðmerar á íslenskum sveitarbæ Sparkað í blóðmerar og eitt ár frá rýmingu Grindavíkur Í sjálfheldu á eigin svölum Nýtt líkan nýjung á Íslandi: VG og Sósíalistar nái ekki á þing og óvissa um Miðflokk Maðurinn er fundinn Stöðvun megi rekja til klúðurs og skorts á fjármagni Ótryggðir bændur Ár frá rýmingu í Grindavík: „Með mestu hamförum sem riðið hafa yfir Ísland“ Kom verðmætum fyrir í röngum bíl sem hvarf á brott Ár frá mestu hamförum síðari tíma og útboðshlé hjá Vegagerðinni Dó fjórum árum eftir að hún hvarf Stærsti skjálftinn við Öskju frá ársbyrjun 2022 Kyrrstaða í vegaframkvæmdum, sigur Trumps og kosningabaráttan framundan Allt of margir með hugann annars staðar í umferðinni Ætlar 1750 kílómetra á þrektækjum á einni viku í minningu vina Baráttan hafin á TikTok: Traktor í Skeifunni, kaldar kveðjur og endurkoma Engin miðlæg skráning slysa í ferðaþjónustu Yazan og fjölskylda leita að nýju húsnæði Úrbætur í kjölfar slyss á Breiðamerkurjökli og vikulöng þrekraun Grunaður um sölu fíkniefna og brot á útlendingalögum Missti stjórn á bílnum þegar klæðingin umvafði dekkin Lögreglan bannaði bjór á B5 Leikskólastarfsmenn í Hafnarfirði greiða atkvæði um verkfall Sjá meira