Eimskipsfólk segist handbendi Eflingar að sér forspurðu Stefán Ó. Jónsson skrifar 28. janúar 2020 08:00 Starfsmönnum Eimskips finnst þeir vera teiknaðir upp sem hálaunastétt í auglýsingu Eflingar. Það sé fjarri sanni. Vísir/vilhelm
Mikil kergja er meðal starfsmanna Eimskips með nýja auglýsingu Eflingar. Þeir segjast ósáttir við að vera notaðir sem vopn í kjarabaráttu stéttarfélagsins og kannast ekki við þau launakjör sem þar eru nefnd. Viðmælandi Eflingar í auglýsingunni segir allt satt og rétt sem þar kemur fram en óánægja Eimskipsfólks skýrist líklega af samanburði taxta og útborgaðra launa. Það hafi eflaust mátt koma skýrar fram og ætlunin ekki að gera lítið úr starfsmönnum Eimskips. Umrædd auglýsing hefur verið sýnd í sjónvarpi undanfarna daga, í samhengi við yfirstandandi kjarabaráttu Eflingarfólks við Reykjavíkurborg. Boðað hefur verið til verkfalls í byrjun næsta mánaðar, sem m.a. mun taka til starfsfólks á hjúkrunarheimilum, heimaþjónustu og leikskólafólks. Viðmælandinn í auglýsingu Eflingar tilheyrir síðastnefnda hópnum. Thelma Björk Brynjólfsdóttir, leiðbeinandi á leikskóla, lýsir bágum launakjörum fyrir starf sem sé oft og tíðum erfitt. Fyrir sjö tíma vinnudag fái hún útborgað á bilinu 250 til 270 þúsund krónur, sem skili henni á bilinu 10 til 30 þúsund krónum eftir að hafa greitt leigu. Starfsmenn Eimskips efast ekki um að leiðrétta þurfi launakjör leikskólastarfsfólks, að sögn Aðalsteins Rúnars Björnssonar, yfirtrúnaðarmanns starfsmanna. Þeir séu hins vegar ósáttir með þá mynd sem dregin er upp af launakjörum þeirra sjálfra í auglýsingunni. „Sonur minn er tvítugur og þegar hann var sautján ára þá fór hann að vinna í Eimskip og hann var með mun hærri launaseðil en ég fékk. Ég vissi ekki hvort ég ætti að gráta eða hlæja og ég skammaðist mín hrikalega mikið fyrir launin mín,“ segir Thelma Björk í lok auglýsingarinnar. Þessi samanburður er ósanngjarn að mati starfsmanna Eimskips og ekki sannleikanum samkvæmur. „Taxtinn hérna nær ekki 300 þúsund krónum, segir Aðalsteinn. Það standist því ekki skoðun að launakjör Eimskipsfólks séu langtum hærri en þau sem nefnd eru í auglýsingunni - „ekki nema að hann [sonur Thelmu] hafi unnið næturvinnu. Taxtinn sjálfur er hins vegar lægri“ Thelma Björk segir í samtali við Vísi að þar liggi hundurinn einmitt grafinn. Sonur hennar hafi unnið mikið á kvöldin sem kunni að skýra háu launin hans. Ef til vill hafi ekki komið nógu skýrt fram í auglýsingunni að um útborguð laun hans hafi verið að ræða, ekki strípaðan taxta. Sonur hennar hafi engu að síður haft meira á milli handanna um hver mánaðamót en hún. Thelma undirstrikar jafnframt að hún hafi ekki ætlað sér að meira úr launakjörum Eimskipsfólks en tilefni er til. Hún hafi aðeins verið að lýsa eigin reynslu. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, færði Degi B. Eggertssyni borgarstjóra verkfallsboðun Eflingarfólks í gær.Vísir/vilhelm Berjast sjálf fyrir betri launum Aðalsteinn hjá Eimskip segir að það sé „gríðarleg kergja hérna innanhúss,“ vegna þessa útspils Eflingar. Hann hafi sjálfur tekið við ótal símtölum frá pirruðum samstarfsmönnum sem kæri sig ekki um að vera stillt svona upp eins og gert er í auglýsingunni. „Það er verið að beita okkur í kjarabaráttu Eflingar, láta það hljóma eins og við séum á einhverjum ofurlaunum.“ Það sé hins vegar ekki raunin, starfsfólk Eimskips sé sjálft að berjast fyrir betri kjörum. „Þetta er ein hættulegasta vinna í heimi, að vinna við hafnarvinnu,“ segir Aðalsteinn. Launakjör þeirra séu ekki í samræmi við það. Þar að auki segist Aðalsteinn ekki þekkja dæmi um sautján ára starfsmenn. Hann standi í þeirri trú að fólk verði að hafa náð 18 ára aldri áður en það hefur störf hjá Eimskip. Það kemur heim og saman við upplýsingar sem fengust frá launadeild fyrirtækisins: „Almennt séð er vinnureglan sú að starfsmenn þurfa að hafa náð 18 ára aldri til að hefja störf hjá Eimskip.“ Aðspurð um þetta segir Thelma að hana minni að sonur hennar hafi verið 17 ára þegar hann hóf störf fyrir Eimskip. Hún útiloki þó ekki að hann kunni að hafa verið nýskriðinn inn á nítjánda ár. Í svari launadeildarinnar segir ennfremur að launatöflur Eimskips styðjist við kjarasamninga viðeigandi stéttarfélaga. Um fimmtungur starfsmanna fyrirtækisins séu þannig félagsmenn Eflingar. Laun séu uppbyggð eftir vinnutíma og starfsstöðvum þar sem álagsgreiðslur geta verið mismunandi eftir eðli starfa. Mikil starfsmannavelta endurspegli lök kjör Thelma telur nokkurn hug í Eflingarfólki fyrir komandi átök, eins og niðurstöður verkfallsboðunarinnar bera með sér. Næstum 96 prósent aðspurðra samþykktu að leggja niður störf í byrjun næsta mánaðar. Thelma telur að langvarandi óánægja með launakjör umræddra stétta spili þar stórt hlutverk. Til að mynda sé mikið brottfall meðal Eflingarfólks á leikskólanum sem hún starfar. Ófaglært fólk sem starfar samkvæmt töxtum félagsins og Reykjavíkurborgar flosni fljótt upp úr starfi. Yfirvofandi vinnustöðvun á leikskólum komi því henni ekki mikið á óvart, nú sé verið að vinna að útfærslu verkfallanna sem Thelma segir að verði líklega mismunandi á milli leikskóla. Það ráðist af hlutfalli Eflingarstarfsmanna á hverjum leikskóla fyrir sig. Útfærslan muni skýrast nánar þegar nær dregur, en fyrsta vinnustöðvun er fyrirhuguð 4. febrúar frá 12:30 til miðnættis. Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, vildi ekki tjá sig um auglýsinguna eða gagnrýni Eimskipsfólks þegar eftir því var leitað.
Kjaramál Verkföll 2020 Tengdar fréttir Gera kröfu um 400 þúsund króna desemberuppbót: „Við einfaldlega lítum svo á að borgin skuldi okkur“ Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir margar sögulegar ástæður fyrir þeirri kröfu félagsins gagnvart Reykjavíkurborg að fara fram á tæplega 400 þúsund krónur í desemberuppbót. 21. janúar 2020 10:30 Dagur svarar Eflingu og segir samninganefndina hafna ásökunum um lögbrot Borgarstjóri segir samninganefnd Reykjavíkurborgar hafna ásökunum um trúnaðarbrest og lögbrot, um leið og hann segir umboð nefndarinnar skýrt og lýsir einnig vilja hennar til að samningar náist. 21. janúar 2020 17:38 Krefjast þess að lægstu laun hjá borginni hækki um 142.507 krónur á mánuði Samninganefnd Eflingar gagnvart Reykjavíkurborg gerir kröfu um að lægstu laun hækki um 142.507 krónur á mánuði á samningstímanum, það er á tímabilinu 2019 til loka árs 2022. 22. janúar 2020 15:24 Mest lesið Omnom gjaldþrota og kröfuhafar uggandi Viðskipti innlent Skáluðu fyrir kraftinum sem knýr samfélagið Viðskipti innlent Innbú Play til sölu: Gæti aflað búinu fjórtán milljóna króna Viðskipti innlent Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent Eva og Guðrún nýir forstöðumenn hjá Icelandair Viðskipti innlent ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Neytendur Nú er ekki hægt að afskrá flugvélar nema að greiða gjöldin Viðskipti innlent Telur um dulda launahækkun skrifstofufólks að ræða Viðskipti innlent Davíð Ernir til liðs við Athygli Viðskipti innlent Ísland verði leiðandi í þróun varna og viðskipta á Norðurslóðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Omnom gjaldþrota og kröfuhafar uggandi Skáluðu fyrir kraftinum sem knýr samfélagið Innbú Play til sölu: Gæti aflað búinu fjórtán milljóna króna Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Eva og Guðrún nýir forstöðumenn hjá Icelandair Nú er ekki hægt að afskrá flugvélar nema að greiða gjöldin Telur um dulda launahækkun skrifstofufólks að ræða Davíð Ernir til liðs við Athygli Netvís tekur við af SAFT Bein útsending: Er gervigreindin alvöru tækifæri fyrir Ísland? Ísland verði leiðandi í þróun varna og viðskipta á Norðurslóðum Segja falda launauppbót hjá níu af hverjum tíu stofnunum ríkisins „Það er kennitöluflakk í skilgreiningu sinni“ Einar rýfur þögnina: Vísar kenningum um fléttu á bug Bein útsending: Ársfundur atvinnulífsins Spá óbreyttum stýrivöxtum í næstu viku „Hef engar upplýsingar um að eitthvað óeðlilegt hafi átt sér stað“ 208 sagt upp í fimm hópuppsögnum Einn stofnenda Play og Leifur í framkvæmdastjórn Icelandair Eiríkur Orri til Ofar Samkaup eignast 38 prósenta hlut í Kjötkompaní Segir stjórnendur ætla að skilja skuldirnar eftir á Íslandi „Það verður andskoti flókið“ Kaupfélagið á bak við risaviðskipti í Iceland Seafood Múlakaffi nýtir farþegamiðstöðina yfir veturinn „Við munum gæta réttar kröfuhafa í hvívetna“ Viðkvæm staða í björgunaraðgerðum Play Europe Horfa fram á tugmilljarða samdrátt og bíða í ofvæni eftir loðnufréttum Hætti korteri eftir peppfund með Möltufólkinu Isavia gefur strandaglópum engin grið Sjá meira
Gera kröfu um 400 þúsund króna desemberuppbót: „Við einfaldlega lítum svo á að borgin skuldi okkur“ Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir margar sögulegar ástæður fyrir þeirri kröfu félagsins gagnvart Reykjavíkurborg að fara fram á tæplega 400 þúsund krónur í desemberuppbót. 21. janúar 2020 10:30
Dagur svarar Eflingu og segir samninganefndina hafna ásökunum um lögbrot Borgarstjóri segir samninganefnd Reykjavíkurborgar hafna ásökunum um trúnaðarbrest og lögbrot, um leið og hann segir umboð nefndarinnar skýrt og lýsir einnig vilja hennar til að samningar náist. 21. janúar 2020 17:38
Krefjast þess að lægstu laun hjá borginni hækki um 142.507 krónur á mánuði Samninganefnd Eflingar gagnvart Reykjavíkurborg gerir kröfu um að lægstu laun hækki um 142.507 krónur á mánuði á samningstímanum, það er á tímabilinu 2019 til loka árs 2022. 22. janúar 2020 15:24
Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent
Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent