Neytendur

Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli

Lovísa Arnardóttir skrifar
Breyta á opnunartíma á Dalvegi frá og með næstu mánaðamótum.
Breyta á opnunartíma á Dalvegi frá og með næstu mánaðamótum. Vísir/Vilhelm

Ákveðið hefur verið að breyta opnunartíma endurvinnslustöðva Sorpu á Dalvegi og í Jafnaseli í ljósi þess að móttekið magn á stöðvunum hefur minnkað síðustu mánuði og heimsóknum fyrir hádegi fækkað. Vetraropnun á Dalvegi og í Jafnaseli tekur gildi 1. nóvember 2026.

Yfir vetrarmánuðina, frá og með 16. ágúst til og með 15. maí, verða stöðvarnar opnar frá klukkan 12:00 til 18:30 en yfir sumarið, frá og með 16. maí til og með 15. ágúst, verða stöðvarnar opnar lengur, eða frá 09:00 til 19:00.

„Með þessu næst fram hagræði í rekstri stöðvanna, sem gerir SORPU kleift að þjónusta viðskiptavini enn betur á þeim stöðvum þar sem aðsóknin er mest og mestur úrgangur berst,“ segir í tilkynningu frá Sorpu.

Skilgreindar sem litlar stöðvar

Þar kemur fram að í mars á þessu ári voru stöðvarnar tvær skilgreindar sem litlar endurvinnslustöðvar. Með því að gera það hafi Sorpa getað aukið öryggi, bætt flæði og leiðbeint viðskiptavinum með stærri og þyngri efnisflokka á stórar stöðvar, sérstaklega stöðvarnar við Breiðhellu og Sævarhöfða, nú Lambhagaveg.

„Reynslan af rekstri litlu stöðvanna tveggja er góð. Biðtími á þeim er styttri og auðveldara en áður fyrir viðskiptavini að athafna sig þegar þeir losa sig við minni úrgang. Viðskiptavinir sem ekki eru í framkvæmdum hafa margir tekið breytingunum fagnandi og upplifa sig öruggari og velkomnari á stöðvunum en áður,“ segir í tilkynningunni og að frá þessum tíma hafi móttekið magn á stöðvunum dregist saman um 60 prósent og heimsóknum fækkað. Því hafi verið ákveðið að breyta opnunartíma.


Tengdar fréttir

Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára

Borgarstjórn hefur samþykkt að hefja útboð afmarkað sorphirðu við heimili í Breiðholti í tilraunaskyni. Samkvæmt tillögu er gert ráð fyrir því að verkið verði boðið út frá 1. maí 2027 til sex ára með möguleika á framlengingu til tveggja ára og geti samtals orðið til átta ára.

Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða

Gunnar Dofri Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu, segir það til skoðunar að fara í mál við fólk sem skilur sorp eftir við grenndargáma sem ekki á að fleygja þar. Það varði við lög að skilja rusl eftir á víðavangi og hæsta sekt geti numið einni milljón króna.

Ferða­lagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær

Endurvinnslustöð Sorpu við Sævarhöfða lokar í dag í síðasta sinn. Í stað stöðvarinnar verður opnuð ný stöð við Lambhagaveg og segir samskiptastjóri Sorpu að þrátt fyrir að þjónustan færist fjær ákveðnum hverfum í Reykjavík eigi ferðalagið með ruslið ekki að taka lengri tíma í heild.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×