Madridingar skoruðu fjögur eftir að hafa lent undir Arnar Geir Halldórsson skrifar 9. febrúar 2020 16:45 Madridingar á hörkusiglingu Vísir/Getty Real Madrid er með sex stiga forystu á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar og setja þar með aukna pressu á erkifjendur sína í Barcelona sem eiga verðugt verkefni fyrir höndum í kvöld gegn Real Betis á útivelli. Real Madrid heimsótti Osasuna í dag og lenti undir snemma leiks þegar Unai Garcia kom heimamönnum í forystu á 14.mínútu. Isco jafnaði metin fyrir Real Madrid eftir hálftíma leik og Sergio Ramos sá til þess að Real færi með forystu í leikhléið. Lucas Vazquez og Luka Jovic komu inn af bekknum hjá Real Madrid þegar skammt var eftir af leiknum og þeir sáu um að gulltryggja fimmta sigur Madridinga í röð. Lokatölur 1-4 fyrir Real Madrid. Spænski boltinn