Á mannauðsmáli: „Fræðsluskot kaupmannsins“ Alfreð 18. ágúst 2020 09:56 Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Samkaupa er viðmælandi í hlaðvarpinu Á mannauðsmáli. Samkaup
Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Samkaupum er gestur Unnar í hlaðvarpinu „Á mannauðsmáli“. Hlustaðu á þáttinn hér: Gunnur Líf tók við starfinu árið 2018 og lagði strax áherslu á að kynnast störfunum og fólkinu hjá Samkaupum. Samkaup rekur yfir 60 matvöruverslanir um allt land. Helstu verslanir eru Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin, Iceland og Samkaup strax. Samkaup er með fyrirtækjaprófíl hjá Alfreð sem hægt er að skoða hér. Fyrstu 100 dagar Gunnar í starfi fóru í rannsóknarvinnu og tók hún viðtöl og sankaði að sér þekkingu um dagleg störf starfsmanna Samkaup allt í kringum landið. Til að styrkja tengslin og fá innsýn í störf Samkaupa tók Gunnur að sér ólík störf og raðaði meðal annar snakkpokum í hillur. Í þættinum ræða Gunnur Líf og Unnur um öfluga fræðslumenningu og fleira sem fylgdi því að byggja upp mannauðssvið Samkaupa. Hún lagði áherslu á að byggja upp “liðið Samkaup” þvert á þau vörumerki sem félagið rekur. Einnig talar Gunnur um mikilvægi þess að búa til tengingu við viðskiptavininn og hlusta á starfsfólkið. Því tengt heldur Samkaup reglulega vinnustofur með öllum starfsmönnum í hverri verslun fyrir sig þar sem starfsmenn fá tækifæri að tjá sína skoðun um hvað væri vel gert, hvað mætti betur fara og markmiðasetningu. Á hverju ári mælir Samkaup vinnustaðamenningu fyrirtækisins og nýtir vinnustofur til að halda áfram að móta menningu fyrirtækisins til framtíðar með hverri verslun fyrir sig. Með þessu móti er búinn til vettvangur fyrir starfsmenn til að koma skoðunum allra upp á yfirborðið og byggja samtal með stjórnendum. Gunnur segir að þetta hafi hjálpað til við að byggja upp liðsheildina þvert á verslanir og landshluta. Mikill metnaður liggur í fræðslu og menntun innan Samkaupa og Gunnur fer yfir mismunandi leiðir fyrir starfsmenn til að vaxa í starfi innan Samkaupa. Grunnfræðslan í starfinu á sér stað í starfi og sú reynsla sem starfsmenn afla sér í vinnunni. Þar að auki er boðið upp á rafræna fræðslugátt svo starfsmenn geti menntað sig. Tvisvar á ári er farið í allar verslanir Samkaupa á landinu og haldnir fyrirlestrar sem nefnast “fræðsluskot kaupmannsins”. Má nefna að síðasta fræðsluskot kaupmannsins snérist um “ofurþjonustu”. Jafnframt er veittur stuðningur til starfsmanna að taka fagnám í verslun og þjónustu sem er blanda af fjarnámi hjá Verzlunarskóla Íslands og vinnustaðanámi. Að lokum ræða Gunnur Líf og Unnur um stóru áherslur fyrirtækisins sem snúast um að styðja við öfluga framlínu sem er verslunarfólk Samkaupa. Mikið álag var á starfsstöðvum í kjölfar Covid en Gunnur segist þakklát stuðningi stjórnenda fyrirtækisins þegar ákveðið var að verðlauna starfsfólk með tveimur aðgerðarpökkum sem fólu í sér aukna afslætti í verslunum fyrirtækisins, mánaðar sjónvarpsáskrift, páskaegg og andlega upplyftingu. Einnig var aukið sumarorlof starfsmanna. Sannarlega rausnarleg gjöf. Áhugaverður þáttur! Þú getur hlustað á vísir.is/útvarp, Podcaststöðinni og Spotify.
Viðskipti Mannauðsmál Mest lesið Meirihluti vill afnema áminningarskyldu Viðskipti innlent „Fer út í daginn uppfull af hundaknúsi“ Atvinnulíf Byrjaði 18 ára í þjónustuverinu og hættir nú sem framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Þrjú kvár stýra fyrirtækjum Viðskipti innlent Hyggjast opna lágvöruverslun og Orkustöð á Blönduósi Viðskipti innlent Telur breytinguna ekki stuðla að því að fólk festist í húsnæði Neytendur Öll lónin full og vatnsbúskapur tók stökkbreytingum Viðskipti innlent Framkvæmdastjórnin beinir spjótunum að Meta og TikTok Viðskipti erlent Tekjur Isavia jukust um tæpa 1,2 milljarða króna milli ára Viðskipti innlent Landsbankinn breytir framboði á lánum eftir vaxtadóminn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forvarnarverðlaun VÍS: „Öryggi er ekki samkeppnismál“ ÍMARk rýnir í markaðsheim framtíðarinnar Tengiltvinnari fyrir taugatrekkta Peltor og Dynjandi saman í 60 ár Framlína heilbrigðisþjónustunnar kallar eftir liðsauka Persónuleg reynsla varð að atvinnurekstri Rafmagnað fyrsta stefnumót við Nissan Ariya Í stuði í 130 ár: Virkjanir sem leystu af dísilvélar og knúðu síldarbæ KLAK health býður sprotafyrirtæki í heilsutækni velkomin Hreinsun þakrenna fyrirbyggir skemmdir Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Viðskiptavinurinn alltaf í fókus Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Greiðsluáskorun BMW lækkar verð á nýjustu kynslóð sportjeppans X3 Plug-in Hybrid Gætum orðið fyrsta landið í heiminum til að snúa þróun offitu við Sjá meira