Bikarmeistararnir töpuðu með rúmlega 60 stigum Anton Ingi Leifsson skrifar 19. febrúar 2020 19:31 Skallagrímur með bikarinn um helgina. vísir/daníel
Skallagrímur varð bikarmeistari um helgina en fékk skell í fyrsta leik eftir bikarleikinn er þær töpuðu fyrir Íslandsmeisturum Vals í kvöld, 107-41. Bikarmeistararnir voru án lykilmanna. Emilie Sofie Hesseldal, Maja Michalska og Keira Breeanne Robinson voru ekki með og það var ljóst að þeirra biði erfitt verkefni er þær heimsóttu Íslandsmeistaranna í kvöld. Valur tók frumkvæðið frá upphafi og var 28-14 yfir eftir fyrsta leihklutann og 52-24 er liðin gengu til búningsherbergja. Íslandsmeistararnir gengu enn frekar á lagið í þriðja leikhlutanum. Þær unnu hann 30-9 og Skallagrímur gerði svo einungis tíu stig í fjórða leikhlutanum. Lokatölur 107-41. Helena Sverrisdóttir gerði 27 stig fyrir Val. Tók hún einnig fimm fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. Kiana Johnson skoraði 16 stig, tók fimm fráköst og gaf sex stoðsendingar. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir skoraði 17 stig fyrir Skallagrím. Að auki tók hún níu fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Gunnhildur Lind Hansdóttir gerði 12 stig og tók sex fráköst. Valur er á toppi deildarinnar með 38 stig en Skallagrímur er í 4. sætinu með 24 stig.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Íslenski boltinn „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Fótbolti „Mér líður frábærlega“ Enski boltinn Sannaði að draumar geta ræst með gamalli mynd Fótbolti Uppgjör: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið Fótbolti UEFA og fleiri sambönd sögð farin að ræða mótahald án FIFA Fótbolti Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum Fótbolti Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Enski boltinn Sögulegur samningur fyrir kvennaknattspyrnuna í Noregi Fótbolti Guðrún Karítas í úrslit og Elísabet nálægt því Sport Fleiri fréttir Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Milka farinn frá Njarðvík Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna KR heldur áfram að sækja leikmenn frá Lettlandi Martin áfram í Berlín Nýr leikmaður Tindastóls féll á lyfjaprófi þegar hann spilaði í G-deild NBA Keflvíkingar semja við Litáa og Stólarnir fá Bandaríkjamann Íslenska liðið með stórsigur á EM Sjá meira