Yfirgnæfandi meirihluti félaga í öllum aðildarfélögum BSRB sem lokið hafa atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun samþykkti boðun verkfalls.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá BSRB. Verkfallsaðgerðir munu hefjast mánudaginn 9. mars, takist samningar ekki fyrir þann tíma.
„Um 87,6 prósent þeirra sem tóku þátt í atkvæðagreiðslunum samþykktu boðun verkfalls hjá sínu félagi. Um 8,1 prósent voru andvíg boðun verkfalls og 4,3 prósent skiluðu auðu í atkvæðagreiðslunum. Það er því ljóst að um 15.400 félagsmenn í aðildarfélögum BSRB eru á leið í verkfallsaðgerðir eftir rúmar tvær vikur,“ segir í tilkynningunni.
Sautján aðildarfélög BSRB stóðu fyrir atkvæðagreiðslunni um verkfallsboðun sem hófst á mánudaginn og lauk í gær.
„Félagsmenn í 15 félögum samþykktu að boða til aðgerða. Hjá einu félagi, Starfsmannafélagi Garðabæjar, náðist ekki næg þátttaka í atkvæðagreiðslunni. Um 41 prósent greiddu atkvæði en 50 prósent félagsmanna þurfa að greiða atkvæði svo verkfallsboðun sé lögleg. Atkvæðagreiðsla hjá einu félagi, Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, er enn í gangi og verða niðurstöður kynntar þegar þær liggja fyrir.“
65 prósent þátttaka að meðaltali
Varðandi þátttöku í atkvæðagreiðslunni segir að að meðaltali hafi um 65 prósent félagsmanna í hverju félagi tekið þátt í atkvæðagreiðslunum.
„Verkföllin munu hafa mikil áhrif á almannaþjónustuna enda munu þau ná til starfsfólks í heilbrigðisþjónustunni, þar með talið á Landspítalanum, og í skólum, leikskólum og á frístundaheimilum. Þá mun starfsfólk í sundlaugum og íþróttahúsum auk starfsmanna sem sinna þjónustu við aldraða og fólk með fötlun leggja niður störf, svo einhver dæmi séu nefnd.
Tvíþættar verkfallsaðgerðir
Boðuðum verkfallsaðgerðum má skipta í tvo hluta. Annars vegar mun þorri félagsmanna hjá ríkinu, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg leggja niður störf á ákveðnum dögum. Þessi hópur mun leggja niður störf dagana 9. og 10. mars, 17. og 18. mars, 24. og 26. mars og 31. mars og 1. apríl.
Í hinum hlutanum eru smærri hópar starfsmanna sem verða í ótímabundnu verkfalli frá og með 9. mars. Í þeim hópi eru meðal annars starfsmenn í grunnskólum og leiðbeinendur á frístundaheimilum á nær öllu höfuðborgarsvæðinu auk Akraness. Að óbreyttu má því reikna með að frístundaheimilin verði lokuð frá upphafi verkfalls þar til samningar takast. Í þeim hópi eru einnig starfsmenn hjá Skattinum og sýslumannsembættum um allt land.
Þessar aðgerðir munu halda áfram fram í dymbilviku, en hafi samningar ekki tekist fyrir 15. apríl munu félagsmenn aðildarfélaga BSRB sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum fara í ótímabundið allsherjarverkfall þar til samningar hafa tekist,“ segir í tilkynningunni.