Viðskipti innlent

Sækja um nýtt starfs­leyfi fyrir ál­verið í Straums­vík

Atli Ísleifsson skrifar
Álver Rio Tinto í Straumsvík.
Álver Rio Tinto í Straumsvík. Vísir/Vilhelm

Rio Tinto á Íslandi hf. hefur sótt um nýtt starfsleyfi fyrir álver ISAL í Straumsvík. Núverandi starfsleyfi rennur út 1. nóvember næstkomandi.

Þetta kemur fram á vef Umhverfisstofnunar. Þar er tekið fram að heimilt sé samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir að framlengja gildistíma starfsleyfis á meðan nýtt starfsleyfi sé í vinnslu. Sé það gert að hámarki til eins árs, hafi fullnægjandi umsókn um nýtt starfsleyfi borist útgefanda.

Ennfremur er tekið fram að unnið sé úr umsókninni og að gerð starfsleyfistillögu. „Tillaga að starfsleyfi verður auglýst opinberlega þegar hún liggur fyrir og gefst þá öllum tækifæri að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin,“ segir á vef stofnunarinnar.

Í svari Bjarna Más Gylfasonar, upplýsingafulltrúa ISAL, við fyrirspurn fréttastofu segir að ISAL sé enn í rekstri og að félagið þurfi að hafa gilt starfsleyfi. Núverandi leyfi sé að renna út. „Þetta er því bara hluti af eðlilegri starfsemi okkar og við erum að sækja um óbreytt starfsleyfi til Umhverfisstofnunnar,“ segir í svarinu.

Óvissa um framtíð álversins

Mikil óvissa hefur verið um framtíð álversins í Straumsvík vegna viðræðna Rio Tinto og Landsvirkjun um raforkusamning, en Rio Tinto segir núverandi samning óhagstæðan. Hefur verið haft á orði að takist ekki að endursemja verði unnið að lokun álversins.

Álframleiðandinn tilkynnti í febrúar síðastliðinn að fyrirtækið hefði hafið endurskoðun á starfsemi álversins til að meta rekstrarhæfi þess til framtíðar. Þar væri allt undir, þar á meðal frekari framleiðsluminnkun, en þá hafði hún þegar við minnkuð í 85 prósent framleiðslugetu, sem og möguleg lokun álversins í Straumsvík.

Í júlí kærði Rio Tinto svo Landsvirkun til Samkeppniseftirlitsins þar sem Landsvirkjun var sakað um að misnotað markaðsráðandi stöðu sína á raforkumarkaði. „Láti Landsvirkjun ekki af skaðlegri háttsemi sinni, hefur ISAL ekki annan kost en að íhuga að segja upp orkusamningi sínum við Landsvirkjun og virkja áætlun um lokun álversins,“ segir í orðsendingu Rio Tinto vegna kvörtunarinnar.

Fréttin hefur verið uppfærð með svari upplýsingafulltrúa ÍSAL við fyrirspurn fréttastofu.


Tengdar fréttir

Álverið mikilvægt en orkan fari ekki á útsölu

Á sama tíma og bjóða á upp á samkeppnishæft umhverfi á að gera kröfu um að sala á orkuafurðum úr sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar sé arðbær. Þetta segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×