Viðskipti erlent

Af­nema breytingagjald í von um fleiri far­þega

Sylvía Hall skrifar
United Airlines ætlar að ráðast í breytingar án þess að það bitni á þjónustu við viðskiptavini.
United Airlines ætlar að ráðast í breytingar án þess að það bitni á þjónustu við viðskiptavini. Vísir/EPA

United Airlines mun frá og með deginum í dag ekki rukka farþega um breytingagjald í innanlandsflugi. Áður hafði flugfélagið afnumið það tímabundið en gjaldið var tvö hundruð dollarar, sem samsvarar tæplega 28 þúsund krónum á gengi dagsins í dag.

Ákvörðunin flugfélagsins miðar að því að gefa viðskiptavinum sínum meiri sveigjanleika á óvissutímum sem nú eru um allan heim. Farþegar geti því breytt ferðaplönum sínum með stuttum fyrirvara án þess að verða fyrir fjárhagslegu tjóni, enda geti aðstæður breyst hratt vegna kórónuveirufaraldursins.

Breytingin mun einnig ná til þeirra miða sem hafa nú þegar verið keyptir, en yfirmaður hjá félaginu, Scott Kirby, sagði þetta vera þá ósk sem fyrirtækið heyrir oftast frá viðskiptavinum að því er fram kemur á vef Reuters.

Þá mun flugfélagið einnig bjóða viðskiptavinum sínum upp á að skrá sig á biðlista í annað flug til sama áfangastaðar þann dag sem fyrirhugað flug þeirra er ef sæti losnar. Viðskiptavinir munu ekki þurfa að greiða fyrir pláss á biðlistanum, en þessi breyting tekur gildi frá og með 1. janúar næstkomandi.

Kirby segir breytingarnar ólíkar þeim ráðum sem flugfélög hafa áður gripið til á erfiðum tímum. Yfirleitt hafi breytingarnar haft neikvæð áhrif á þjónustu við viðskiptavini, en nú séu leikreglurnar aðrar.


Tengdar fréttir

Segir að Trump muni aðstoða flugfélögin geri þingið það ekki

Framkvæmdastjóri Hvíta hússins segir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sé að íhuga að grípa inn í til þess að koma í veg fyrir gríðarlegar fjöldauppsagnir hjá flugfélögum í Bandaríkjunum, fari svo að Bandaríkjaþing framlengi ekki björgunarpakka stjórnvalda handa flugfélögum þar í landi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×