Navalní sagður geta talað á ný Atli Ísleifsson skrifar 10. september 2020 08:07 Alexei Navalní dvelur nú á sjúkrahúsi í Berlín í Þýskalandi. Getty
Rússneski stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalní eru sagður geta talað á ný og getur mögulega munað eftir smáatriðum úr flugferðinni örlagaríku þar sem eitrað var fyrir honum. Þýska blaðið Spiegel hefur þetta eftir ónafngreindum heimildarmönnum. Greint var frá því á mánudaginn að Navalní hafi vaknað eftir að hafa verið í dái síðan 20. ágúst síðastliðinn. Spiegel segir að þýska lögreglan hafi eflt gæsluna á sjúkrahúsinu í Berlín þar sem Navalní hefur dvalið síðustu vikurnar. Er óttast að önnur tilraun verði gerð til að ráða Navalní af dögum. Navalní veiktist skyndilega um borð í flugvél sem var á leið frá Síberíu til Moskvu, en fljótlega kviknaði grunur um að eitrað hefði verið fyrir honum. Sá grunur var síðar staðfestur í Þýskalandi og telja yfirvöld þar hafið yfir allan vafa að honum hafi verið byrlað taugaeitrið Novichok. Flugvélinni var nauðlent í Omsk eftir að Navalní veiktist og naut hann til að byrja með aðhlynningar á sjúkrahúsi þar, en var svo fluttur til Berlínar. Rússnesk stjórnvöld hafa hafnað ásökunum um að hafa eitrað fyrir Navalní og krafist frekari upplýsinga um rannsóknir sem hafa verið gerðar á honum í Þýskalandi.
Eitrað fyrir Alexei Navalní Þýskaland Rússland Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Innlent Fleiri fréttir Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjá meira