Valdimar Þór Ingimundarson lék sinn fyrsta leik fyrir Strömsgodset í norsku úrvalsdeildinni í kvöld eftir að hafa verið keyptur til félagsins frá Fylki á dögunum.
Valdimar var í byrjunarliði Strömsgodset gegn Sarpsborg en var skipt af velli í leikhléi. Þá var staðan 0-0 og reyndust það lokatölur leiksins.
Ari Leifsson sat allan tímann á varamannabekk Strömsgodset.
Á sama tíma lék Aron Sigurðarson 65 mínútur þegar lið hans, Union St.Gilloise, beið lægri hlut fyrir Molenbeek 3-1 í belgísku B-deildinni.