Innlent

Breytilegt veður í vikunni en engin aftök

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Það er komið haust og þess gætir í veðrinu.
Það er komið haust og þess gætir í veðrinu. Vísir/Vilhelm

Það verða yfirleitt fremur hægir vindar í dag og víða dálitlar skúrir en norðaustan kaldi og slydduél á Ströndum og Vestfjörðum með kvöldinu, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar.

Það er spáð suðlægum áttum á morgun og rigningu á Suðausturlandi, víða annars staðar skúrir en léttir til norðaustanlands.

Það sem eftir lifir vikunnar verður breytilegt veður með vætu í flestum landshlutum en engin aftök að því er séð verður, eins og það er orðað í hugleiðingunum. Milt veður að deginum, en sums staðar vægt frost að næturlagi.

Veðurhorfur á landinu:

Vestlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s, en 8-13 með N-ströndinni. Dálitlar skúrir í flestum landshlutum, en norðlægari og slydduél NV til undir kvöld.

Suðlæg átt, 3-10 m/s á morgun, en norðaustan 8-13 á Vestfjörðum. Rigning á SA-landi og skúrir V-til, en annars úrkomulítið. Hiti 1 til 10 stig, hlýjast SA-lands.

Á þriðjudag:

Norðaustan 13-18 m/s NV til á landinu, en annars austlæg átt, 8-15. Rigning í flestum landshlutum, jafn vel slydda á Vestfjörðum, en úrkomulítið NA-lands. Hiti 1 til 9 stig, hlýjast á Suðausturlandi.

Á miðvikudag:

Austlæg eða breytileg átt, 8-15 m/s, en 13-18 á annesjum nyrðra og víða talsverð rigning, en úrkomulítð SV-lands. Snýst í suðvestanátt um kvöldið og rofar til. Hiti 3 til 10 stig, hlýjast á NA-landi.

Á fimmtudag:

Suðlægar áttir, strekkingur vestast, en annars hægara. Skúrir víða um land, en léttskýjað NA til. Hiti víða 2 til 7 stig.

Á föstudag:

Útlit fyrir hæga norðlæga átt og víða bjartviðri, en fremur svalt í veðri.

Á laugardag og sunnudag:

Líklega austanáttir með vætu víða um land og hægt hlýnandi veður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×