Ýmsar breytingar gerðar á skóla- og tómstundastarfi vegna kórónuveirunnar Eiður Þór Árnason skrifar 15. mars 2020 18:25 Áframhaldandi faraldur kórónuveiru mun hafa áhrif á skóla- og tómstundastarf á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Vilhelm
Breytingar verða gerðar á skólastarfi, starfsemi íþróttamiðstöðva, sundlauga og menningarhúsa á höfuðborgarsvæðinu næstu vikur. Þar verður gripið til ýmissa aðgerða í samræmi við tilmæli sóttvarnarlæknis og stjórnvalda. Starfsdagur verður í öllum grunn- og leikskólum á höfuðborgarsvæðinu á morgun þar sem stjórnendur og starfsfólk mun vinna að endurskipulagningu skólastarfsins í ljósi aðstæðna. Einnig verða allir sundstaðir og íþróttamiðstöðvar á höfuðborgarsvæðinu lokaðar á morgun. Samkomubann tekur gildi um allt land nú á miðnætti. Í kjölfar þess verður öllum framhalds- og háskólum lokað í fjórar vikur en börn munu áfram ganga í grunn- og leikskóla. Munu ekki kenna fleiri en tuttugu nemendum í stofu Meðal þeirra aðgerða sem gripið verður til á höfuðborgarsvæðinu er að kennsla í grunnskólum mun takmarkast við tuttugu nemenda hópa, öll hefðbundin kennsla í list- og verkgreinastofum mun falla niður og íþrótta- og sundkennsla verður í formi hreyfingar á skólalóð. Sér- og starfsdeildir verða með óbreytta starfsemi eftir fremsta megni. Þá verður matarþjónusta í boði í skóla ef mögulegt er að koma því við. Leikskólastarf mun skerðast Á leikskólum verður gætt að því að börn verði í sem minnstum hópum og sem mest aðskilin. Vegna þessa raskast skólastarf í leikskólum og opnunartími getur breyst. Nákvæm útfærsla aðgerða verður hins vegar misjöfn milli einstakra grunn- og leikskóla. Forráðamenn eru því hvattir til þess að fylgjast vel með upplýsingum frá sínum skóla. Einnig eru fyrirhugaðar breytingar á starfi sundstaða, íþróttamiðstöðva, frístundaheimila, félagsmiðstöðva, íþróttafélaga og tónlistarskóla á höfuðborgarsvæðinu. Sjá má tilkynningu þess efnis frá sveitarfélögunum í heild sinni hér fyrir neðan. Tilkynningin í heild sinni Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa síðan á föstudag unnið að útfærslu á skólastarfi, starfsemi íþróttamiðstöðva, sundlauga og menningarhúsa næstu vikna í samræmi við tilmæli sóttvarnarlæknis og stjórnvalda. Í ljósi þess að skólastarf verður með mismunandi hætti milli sveitarfélaga og innan sveitarfélaga eru íbúar á höfuðborgarsvæðinu beðnir um fylgjast vel með upplýsingum sem birtast munu á heimasíðum sveitarfélaganna og heimasíðum grunn- og leikskóla og þeirra stofnana sem við eiga. Rétt er að ítreka að á morgun, mánudaginn 16. mars verður starfsdagur í grunn- og leikskólum höfuðborgarsvæðisins þar sem stjórnendur og starfsfólk vinna nú að skipulagningu skólastarfs miðað við ofangreindar ákvarðanir. Frekari upplýsingar um skólastarf verður að finna á heimasíðun skólanna. Þá verða sundstaðir og íþróttamiðstöðvar lokaðar til að vinna að útfærslum á starfsemi þeirra miðað við tilmæli. Grunnskólar á höfuðborgarsvæðinu Kennsla verður í hópum með ekki fleiri en 20 nemendum og ekki verður um blöndun hópa að ræða innan skóladagsins. Skólar munu halda úti eins miklu skólastarfi og kennslu og kostur er við þessar aðstæður. Það verður í höndum hvers sveitarfélags og skóla að útfæra skiptingu kennslu milli viðveru í skóla og náms heima. Nákvæm útfærsla verður því ólík milli skóla á höfuðborgarsvæðinu. Öll hefðbundin kennsla í list- og verkgreinastofum mun falla niður og íþrótta- og sundkennsla verður í formi hreyfingar á skólalóð, inni í hópastofum eða annarrar útikennslu. Hver skóli skipuleggur nánari tilhögun skóladagsins og kennslutilhögun. Sér- og starfsdeildir verða með óbreytta starfsemi eftir fremsta megni. Þá verður matarþjónusta í boði í skóla ef mögulegt er að koma því við. Öll neysla á mat fer fram í heimastofum eða í matsal skóla þar sem því verður við komið. Vettvangsferðir falla niður ásamt ferðum í skólabúðir. Leikskólar á höfuðborgarsvæðinu Gert er ráð fyrir því að halda starfsemi leikskóla gangandi á sem öruggastan hátt með þeim hætti að börn verði í sem minnstum hópum og aðskilin sem mest. Vegna þessa raskast skólastarf í leikskólum og opnunartími getur breyst s.s. vegna þrifa sem nauðsynleg eru. Hver leikskóli á höfuðborgarsvæðinu mun upplýsa foreldra um útfærslu á skólastarfi á heimasíðu eða í gegnum aðra miðla. Sundstaðir og íþróttamiðstöðvar á höfuðborgarsvæðinu Fjöldatakmarkanir miðast við 100 manns í sama rými í einu og tveggja metra fjarlægð verði milli einstaklinga. Sundlaugar eiga á flestum tímum dagsins að geta uppfyllt fyrra skilyrðið en tveggja metra fjarlægð er erfitt að uppfylla í sundlaugum og í íþróttahúsum. Það er ljóst að samkvæmt þeim tilmælum sem borist hafa, mun íþróttastarf og rekstur íþróttamannvirkja riðlast á næstunni. Endurskipuleggja þarf verkferla með tilliti til nýrra krafna um sóttvarnir og til að tryggja öryggi gesta og starfsmanna sundlauga og íþróttamiðstöðva. Allir sundstaðir og íþróttamiðstöðvar verða því lokaðar mánudaginn 16. mars og dagurinn nýttur til ákvarðanartöku um framhaldið í samstarfi við viðeigandi aðila. Frístundaheimili og félagsmiðstöðvar á höfuðborgarsvæðinu Frístundaheimili verða opin í framhaldi af skóladegi yngstu nemenda en viðbúið er að starfsemi muni að einhverju leyti skerðast. Starfsemi félagsmiðstöðva tekur breytingum þar sem megináhersla verði á að mæta félagsþörf án þess að skörun verði milli hópa eða bekkja. Til dæmis með hópaskiptingu eða árgangaskiptingu í opnunum og lögð áhersla á hópastarf en ekki stærri samkomur. Nákvæm útfærsla verður ólík milli félagsmiðstöðva. Tónlistarskólar og skólahljómsveitir á höfuðborgarsvæðinu Tímar í hljóðfærakennslu og söngkennslu fara fram í húsnæði eða heimastöð tónlistarskóla eða skólahljómsveita. Hóptímar s.s. hljómsveitartímar, hópæfingar, tónfundir, forskóli og tónfræðitímar falla niður. Allir viðburðir tengdir þessari starfsemi falla niður. Viðmið þessi taka einnig til tónlistarnemenda sem eru eldri en 18 ára. Lögð er áhersla á að leitað sé leiða til að viðhalda virkni óháð fjarveru og niðurfellingu tónlistartíma. Nákvæm útfærsla verður ólík milli skóla. Skólaíþróttir og íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu Ekki verður hefðbundin íþrótta- og sundkennsla á vegum grunnskóla í samkomubanninu. Viðkomandi húsnæði verður lokað fyrir skólakennslu og íþrótta- og sundkennarar vinna með námshópnum í heimastofu eða úti á skólalóð. Íþróttafélög munu gefa út eigin tilkynningar um íþróttaæfingar. Tilkynningar eru þegar komnar frá íþróttasamböndum um leikjabann. Menningarstofnanir á höfuðborgarsvæðinu Söfnin á höfuðborgarsvæðinu, listasöfn, bókasöfn og sögusöfn halda óbreyttum opnunartíma þrátt fyrir samkomubann en boðuðum viðburðum verður aflýst eða frestað, svo sem leiðsögnum, listsmiðjum og málþingum, á meðan samkomubannið er í gildi. Á söfnum eru gestir hvattir til að hafa hæfilega fjarlægð sín á milli. Áfram verður lögð áhersla á aukin þrif í söfnunum á höfuðborgarsvæðinu umfram venjubundna ræstingu. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu eru hvattir til að fylgjast vel með upplýsingum sem birtast munu á heimasíðum sveitarfélaganna og heimasíðum grunn- og leikskóla og þeirra stofnana sem við eiga. Þá eru íbúar jafnframt hvattir til að fylgja leiðbeiningum landlæknis um viðbrögð við veirunni inn á covid.is. Við erum öll almannavarnir.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Skóla - og menntamál Samkomubann á Íslandi Mest lesið Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Innlent Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Erlent Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Erlent Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Innlent Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Innlent Blóðbankinn á leið í Kringluna Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Tveir skjálftar yfir þrír að stærð Innlent Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Viðskipti innlent Fleiri fréttir Minnsti þéttleiki makríls síðan 2010 Tveir skjálftar yfir þrír að stærð Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Blóðbankinn á leið í Kringluna Nokkuð um hávaðaútköll Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Ráðstafanir í Reynisfjöru, tollar og lax á sjaldséðum slóðum Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Sjá meira