HönnunarMars á næsta ári verður haldin í maí. Stærsta hönnunarhátíð landsins fer fram dagana 19-23. maí í stað þess að fara fram í mars. Opnað verður fyrir umsóknir þátttakanda 2. nóvember.
„Stjórn hátíðarinnar tók ákvörðun þess efnis, bæði í ljósi yfirstandandi heimsfaraldurs og óvissunni sem því fylgir og sömuleiðis gríðarlega góðum viðtökum bæði þátttakenda og gesta við HönnunarMars í júní sem fór fram dagana 24.-28. júní,“ segir Þórey Einarsdóttir, stjórnandi HönnunarMars.
„HönnunarMars er 12 ára hátíð sem fæddist í miðju hruni og hefur frá upphafi verið boðberi bjartsýni, nýsköpunar og nýrra leiða. Hátíðin mun halda áfram að koma inn með krafti, veita innblástur og gleði ásamt að varpa ljósi þann kraumandi skapandi kraft sem hönnunarsamfélagið hér á landi hefur að geyma. Við vitum hvorki hvað framtíðin ber í skauti sér né hvernig hátíðarhald verður en ljóst er að alltaf verður þörf á samtalinu. Því ber okkur skylda að halda ótrauð áfram. Það eru bjartari tímar fram undan, HönnunarMars 2021 verður með nýju sniði í takt við nýja tíma.“

Um 80 sýningar og 100 viðburðir breiddu úr sér á höfuðborgarsvæðinu á HönnunarMars í sumar þar sem gestum gafst tækifæri að sækja sér innblástur og kynnast grósku íslenska hönnunarsamfélagsins.
Hátíðin boðar nýjungar og óvænta nálgun og er lífleg höfn hugmynda, ólíkra sjónarmiða og þekkingar, hreyfiafl sem auðgar og bætir samfélagið. Nánari upplýsingar má finna á vef HönnunarMars en opið verður fyrir umsóknir þátttakanda frá 2. til 30. nóvember.