Aron, Hákon og Elvar gældu allir við einkunnina tíu í Höllinni í gærkvöldi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. nóvember 2020 11:00 Aron Pálmarsson í leiknum í Laugardalshöllinni í gærkvöldi. Vísir/Vilhelm Aron Pálmarsson, Hákon Daði Styrmisson og Elvar Örn Jónsson voru allir frábærir með íslenska handboltalandsliðinu í stórsigrinum á Litháen í undankeppni EM í Laugardalshöllinni í gær. HB Statz var á leiknum og tók alla tölfræðina í leiknum sem Íslands vann með sextán marka mun, 36-20. Þetta var fyrsti leikur íslensku strákanna í riðlinum. Þeir Aron Pálmarsson, Elvar Örn Jónsson og Hákon Daði Styrmisson fengu hæstu einkunnina af leikmönnum íslenska liðsins. Þeir gældu líka allir við einkunnina tíu á sitthvorum hluta vallarins. Aron Pálmarsson fékk þannig 9,9 í einkunn hjá HB Statz fyrir sóknarleikinn. Aron nýtti öll þrjú skotin sín í leiknum og gaf að auki átta stoðsendingar. Aron skapaði alls tólf færi fyrir liðfélaga sína og ein sending hans gaf víti. Aron tapaði líka aðeins tveimur boltum þrátt fyrir að búa svo mikið til fyrir liðið. Hákon Daði Styrmisson fékk einnig 9,9 í einkunn fyrir sóknarleik sinn í gærkvöldi. Hákon var markahæstur í íslenska liðinu en hann skoraði átta mörk og klikkaði ekki á einu einasta skoti. Þrjú af mörkum Hákonar komu úr hraðaupphlaupum. Elvar Örn Jónsson fékk aftur á móti 9,8 í einkunn hjá HB Statz fyrir varnarleikinn. Elvar átti átta lögleg stopp í leiknum og náði þremur fráköstum. Elvar lék einnig vel í sókninni því hann skoraði fimm mörk úr aðeins sex skotum og gaf einnig tvær stoðsendingar.
Aron Pálmarsson, Hákon Daði Styrmisson og Elvar Örn Jónsson voru allir frábærir með íslenska handboltalandsliðinu í stórsigrinum á Litháen í undankeppni EM í Laugardalshöllinni í gær. HB Statz var á leiknum og tók alla tölfræðina í leiknum sem Íslands vann með sextán marka mun, 36-20. Þetta var fyrsti leikur íslensku strákanna í riðlinum. Þeir Aron Pálmarsson, Elvar Örn Jónsson og Hákon Daði Styrmisson fengu hæstu einkunnina af leikmönnum íslenska liðsins. Þeir gældu líka allir við einkunnina tíu á sitthvorum hluta vallarins. Aron Pálmarsson fékk þannig 9,9 í einkunn hjá HB Statz fyrir sóknarleikinn. Aron nýtti öll þrjú skotin sín í leiknum og gaf að auki átta stoðsendingar. Aron skapaði alls tólf færi fyrir liðfélaga sína og ein sending hans gaf víti. Aron tapaði líka aðeins tveimur boltum þrátt fyrir að búa svo mikið til fyrir liðið. Hákon Daði Styrmisson fékk einnig 9,9 í einkunn fyrir sóknarleik sinn í gærkvöldi. Hákon var markahæstur í íslenska liðinu en hann skoraði átta mörk og klikkaði ekki á einu einasta skoti. Þrjú af mörkum Hákonar komu úr hraðaupphlaupum. Elvar Örn Jónsson fékk aftur á móti 9,8 í einkunn hjá HB Statz fyrir varnarleikinn. Elvar átti átta lögleg stopp í leiknum og náði þremur fráköstum. Elvar lék einnig vel í sókninni því hann skoraði fimm mörk úr aðeins sex skotum og gaf einnig tvær stoðsendingar. Hæstu einkunnir íslensku strákanna í sóknarleiknum: (Tölur frá HB Statz) 1. Aron Pálmarsson 9,9 1. Hákon Daði Styrmisson 9,9 3. Arnór Þór Gunnarsson 8,0 4. Elvar Örn Jónsson 7,7 5. Janus Daði Smárason 7,5 6. Viggó Kristjánsson 7,0 Hæstu einkunnir íslensku strákanna í varnarleiknum: (Tölur frá HB Statz) 1. Elvar Örn Jónsson 9,8 2. Aron Pálmarsson 8,7 3. Viktor Gísli Hallgrímsson 8,5 (Markvörður) 4. Ýmir Örn Gíslason 8,3 5. Arnar Freyr Arnarsson 7,1 6. Ómar Ingi Magnússon 6,8
Hæstu einkunnir íslensku strákanna í sóknarleiknum: (Tölur frá HB Statz) 1. Aron Pálmarsson 9,9 1. Hákon Daði Styrmisson 9,9 3. Arnór Þór Gunnarsson 8,0 4. Elvar Örn Jónsson 7,7 5. Janus Daði Smárason 7,5 6. Viggó Kristjánsson 7,0 Hæstu einkunnir íslensku strákanna í varnarleiknum: (Tölur frá HB Statz) 1. Elvar Örn Jónsson 9,8 2. Aron Pálmarsson 8,7 3. Viktor Gísli Hallgrímsson 8,5 (Markvörður) 4. Ýmir Örn Gíslason 8,3 5. Arnar Freyr Arnarsson 7,1 6. Ómar Ingi Magnússon 6,8
EM 2022 í handbolta Mest lesið Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Enski boltinn Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport Orri aftur með draumainnkomu Fótbolti Trump um baulið á Vance á setningu ÓL: „Er það satt? Það kemur á óvart“ Sport Albert meiddist og Fiorentina missti frá sér sigurinn Fótbolti Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Íslenski boltinn Martin missir af landsleikjunum Körfubolti Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Enski boltinn „Þriðji leikhlutinn fór með þetta“ Sport „Við ætlum að skemmta okkur í kvöld“ Körfubolti Fleiri fréttir Íslensku landsliðskonurnar hjálpuðu að landa fyrsta stiginu Sara Dögg með þrettán mörk og 93 prósent skotnýtingu Náðu ekki körfunum upp og þurftu að fresta leik í Olís-deild karla Toppliðið lagði Hauka örugglega að velli Sigvaldi skoraði fjögur mörk í stórsigri Kolstad Einar fagnaði eftir Íslendingaslag Guðmundur gerði sínu gamla liði grikk með marki á elleftu stundu Leiðin að bikarnum klár og Hafnarfjarðarliðin mætast Útskrifast úr Verzló og heldur út í atvinnumennsku: „Rétt skref fyrir mig“ Meistararnir stöðvuðu Mosfellinga Oddur í ham og Þór dró Stjörnuna niður í fallbaráttu Framkonur flugu upp í þriðja sæti Uppgjörið: Valur - Haukar 34-41 | Hafnfirðingar tylla sér á toppinn Sá reynslumesti hættur með landsliðinu Beint af EM í toppslag: „Andlegi hlutinn sem ég þarf að eiga við“ Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Valur áfram í undanúrslit bikarsins Sjö íslensk mörk í mikilvægum sigri Skoraði nær helming marka ÍR í tapi gegn KA Eyjamenn skoruðu fjörutíu mörk gegn Selfyssingum Sigvaldi sneri aftur eftir stutt stopp á EM Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Biluð flugvél en gestirnir flugu inn í úrslitavikuna Metáhorf á Íslandi og þriðjungur Dana sá sigurinn Bæði lið Hauka gætu unnið bikarinn Sjá meira