Viðskipti innlent

20 þúsund komnir með Parka

Tinni Sveinsson skrifar
Mörg bílastæði hafa verið tómleg í ár en þau fyllast væntanlega aftur er faraldrinum slotar.
Mörg bílastæði hafa verið tómleg í ár en þau fyllast væntanlega aftur er faraldrinum slotar. Vísir/Vilhelm

Í mörg ár var appið Leggja það eina sem stóð til boða þegar greiða átti fyrir bílastæði í miðborg Reykjavíkur. Það breyttist fyrir um ári síðan þegar appinu Parka var ýtt úr vör. Í tilkynningu frá Computer Vision kemur fram að viðtökurnar hafi verið vonum framar og notendur Parka séu nú komnir yfir 20 þúsund.

„Við erum gríðarlega ánægðir með árangurinn, enda búnir að vera bæta við okkur notendum jafnt og þétt frá því við hófum þessa vegferð. Það tekur tíma og þrautseigju að byggja upp kerfi sem þetta og því hvetjandi að sjá hversu góð viðbrögðin hafa verið” segir Ívar F. Sturluson, markaðsstjóri Computer Vision.

Hægt að nota í bílahúsum

Parka er í eigu Computer Vision sem er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki og er með alla sína starfsemi hérlendis.

Ársæll Baldursson framkvæmdastjóri og Ægir Finnsson tæknistjóri Computer Vision, sem rekur Parka appið.

Á sama tíma og Parka var sett í loftið keypti sænska félagið EasyPark Leggja appið.  Í tilkynningunni um Parka kemur fram að munurinn á þessum öppum sé að notkun Parka er gjaldfrjáls. 

„Þú getur notað appið okkar til að greiða fyrir öll gjaldskyld bílastæði, að undanskildum þeim sem eru með hlið sem krefjast þess að þú takir miða til að komast inn á bílastæðin. Parka appið hefur einnig það umfram samkeppnisaðilann að appið okkar er hægt að nota í bílahúsunum við Höfðatorg, Hafnartorg og Kirkjusand (opnar bráðlega).“


Tengdar fréttir

Nýjungar bætast við Parka appið

Opnað verður fyrir fyrirtækjaáskrift í Parka snjallforritinu á næstu dögum. Í þróun eru fleiri spennandi lausnir úr smiðju fyrirtækisins Computer Vision sem sérhæfir sig í gervigreind. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×