Tók metið af Sigga Jóns og fór sextán ára til Real Madrid en hvað gerðist svo? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. nóvember 2020 13:30 Martin Ödegaard á ferðinni í leik með Real Madrid á móti Villarreal um helgina. Getty/Jose Miguel Fernandez
Mest lesið Olnbogi Ægis brotnaði Körfubolti Uppgjörið: Keflavík-Valur 88-81 | Keflavík tryggði sér oddaleik Körfubolti Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Fótbolti Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Körfubolti Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Fótbolti „Þeir geta tekið þetta með sér“ Fótbolti Uppgjör: Valur-Fram 26-24 | Ótrúleg endurkoma meistaranna í fyrsta leik Handbolti Ekitike sleit hásin Fótbolti Oliver keyptur til KA Íslenski boltinn Arsenal tókst ekki að skora en komst samt áfram í undanúrslit Fótbolti Fleiri fréttir „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Arsenal tókst ekki að skora en komst samt áfram í undanúrslit „Þetta var skandall“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta „Framtíð fótboltans er í góðum málum með þennan gutta“ „Þeir geta tekið þetta með sér“ Oliver keyptur til KA Gæti misst fjóra leikmenn í bann og vill breyta reglunum Real Madrid goðsögn fallin frá Ekitike sleit hásin „Þessu einvígi var stolið frá okkur“ Sjáðu Dembélé skjóta Liverpool úr leik og markið mikilvæga hjá Atlético Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Gylfi eftirlitsmaður hjá Arsenal í Meistaradeildinni „Svo margir dómar hafa fallið gegn okkur“ Atlético Madrid í undanúrslit eftir mikla dramatík PSG sótti sigur á Anfield og sló Liverpool út Isak byrjar hjá Liverpool en Salah er aftur á bekknum Hættur að þjálfa Messi fjórum mánuðum eftir titilinn Uppgjörið: Ísland - Úkraína 1-0 | Stelpurnar okkar nældu í þrjú stig Thelma Karen í byrjunarliðinu „Þau gefa okkur ótrúlega mikið með því að sýna okkur áhuga“ Iraola yfirgefur Bournemouth Vill sjá styttri leiki með engum spjöldum og fleiri mörkum „Trúum því að við getum gert eitthvað sérstakt“ Viðbrögðin við ráðningu kvenþjálfara „vandræðaleg“ „Hleyp jafn hratt og Mikael“ Sjá meira
Hugsaðu þér að vera ekki búinn að halda upp á 22 ára afmælið þitt en vera samt gleymdur og grafinn í huga margra fótboltáhugamanna. Það gæti samt verið að breytast hjá Norðmanninum Martin Ödegaard. Norðmanninum Martin Ödegaard var heldur betur hent út í djúpu laugina þegar hann var sextán ára gamall þegar Real Madrid keypti hann frá Strömsgodset í janúar 2015. Ödegaard lagði upp mark í sínum fyrsta leik í norsku deildinni þá aðeins 15 ára og 118 daga og fyrsta markið kom mánuði síðar. Hann er yngsti til að bæði spila og skora í norsku deildinni. Væntingarnar voru strax komnar upp úr öllu valdi og ekki minnkuðu þær þegar eitt stærsta félag heims bankaði á dyrnar. Það er erfitt fyrir alla að standa undir því hvað þá þegar þú ert ekki kominn á bílprófsaldur. Úr varð líka ótrúleg saga og þrátt fyrir að mörgum finnist árin hafa runnið frá þessum leikna knattspyrnumanni þá er verður hann ekki 22 ára gamall fyrr en í desember. Nú sér aftur til sólar hjá honum hjá Real Madrid og í kvöld gæti hann náð stóru takmarki í Meistartadeildinni. Breska ríkisútvarpið tók saman feril norska undrabarnsins til þess í fróðlegu myndbandi en það má nálgast hér. Moved to Real Madrid at 16 Loaned to Heerenveen, Vitesse and Real Sociedad Dealt with injury setbacks Can Martin Odegaard finally succeed at the Bernabeu? #bbcfootball— BBC Sport (@BBCSport) November 25, 2020 Ödegaard hafði slegið í gegn með Strömsgodset í norska fótboltanum og var kominn með viðurnefnið norski Messi þegar Real Madrid ákvað að veðja á hann. Stökkið var hins vegar stórt og pressan mikið á svo ungum dreng að vera allt í einu orðinn leikmaður eins stærsta félags í heimi. Martin Ödegaard, þá bara 15 ára og 300 daga, hafði nokkrum mánuðum fyrr bætt met Sigurðar Jónssonar þegar hann kom inn á sem varamaður í leik Noregs og Möltu. Sigurður Jónsson hafði þá verði yngsti leikmaðurinn til að spila í undankeppni EM frá árinu 1983. Ödegaard tókst ekki að stimpla sig inn hjá Real Madrid á þessum tíma og fór á láni næstu árin. Ödegaard spilaði með Heerenveen og Vitesse í Hollandi og með Real Sociedad á Spáni. Á öllum stöðum náði strákurinn að stíga þroskaskref og bæta sig sem knattspyrnumaður. Frammistaða hans með Real Sociedad í spænsku deildinni sýndi líka Real Madrid að hann væri nógu góður fyrir La Liga ekki síst þegar hann skoraði og hjálpaði Sociedad liðinu að slá Real Madrid út úr bikarnum. Ödegaard endaði tímabilið hjá Real Sociedad með 7 mörk og 9 stoðsendingar og Zinedine Zidane hringdi í hann og bauð honum annað tækifæri hjá Real Madrid. Martin Ödegaard hefur reyndar verið óheppinn með meiðsli á árinu 2020 en er núna kominn aftur af stað eftir meiðslin sem hann varð fyrir í landsliðsverkefni með Noregi í október. Ödegaard var í byrjunarliði Real Madrid á móti Villarreal um síðustu helgi og gæti spilað sinn fyrsta Meistaradeildarleik með Real liðinu á móti Internazionale í kvöld. Leikur Inter og Real Madrid er einn af fjórum leikjum sem verða sýndir beint á Stöð 2 Sport í kvöld. Útsendingin frá honum hefst klukkan 19.30 á Stöð 2 Sport 5. Hinir leikir kvöldsins sem verða í beinni eru leikur Olympiakos og Manchester City á Stöð 2 Sport 4, leikur Bayern München og Red Bull Salzburg á Stöð 2 Sport og svo leikur Liverpool og Atalanta á Stöð 2 Sport 4. Meistaradeildarmessan mun hita upp fyrir kvöldið frá klukkan 19.30 á Stöð 2 Sport 2 og sýna mörg og dauðafæri úr öllum leikjum um leið og eitthvað gerist. Meistaradeildarmörkin eru síðan á dagskránni á sömu stöð eftir að leikjum kvöldsins lýkur. Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport Erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport Erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Olnbogi Ægis brotnaði Körfubolti Uppgjörið: Keflavík-Valur 88-81 | Keflavík tryggði sér oddaleik Körfubolti Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Fótbolti Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Körfubolti Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Fótbolti „Þeir geta tekið þetta með sér“ Fótbolti Uppgjör: Valur-Fram 26-24 | Ótrúleg endurkoma meistaranna í fyrsta leik Handbolti Ekitike sleit hásin Fótbolti Oliver keyptur til KA Íslenski boltinn Arsenal tókst ekki að skora en komst samt áfram í undanúrslit Fótbolti Fleiri fréttir „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Arsenal tókst ekki að skora en komst samt áfram í undanúrslit „Þetta var skandall“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta „Framtíð fótboltans er í góðum málum með þennan gutta“ „Þeir geta tekið þetta með sér“ Oliver keyptur til KA Gæti misst fjóra leikmenn í bann og vill breyta reglunum Real Madrid goðsögn fallin frá Ekitike sleit hásin „Þessu einvígi var stolið frá okkur“ Sjáðu Dembélé skjóta Liverpool úr leik og markið mikilvæga hjá Atlético Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Gylfi eftirlitsmaður hjá Arsenal í Meistaradeildinni „Svo margir dómar hafa fallið gegn okkur“ Atlético Madrid í undanúrslit eftir mikla dramatík PSG sótti sigur á Anfield og sló Liverpool út Isak byrjar hjá Liverpool en Salah er aftur á bekknum Hættur að þjálfa Messi fjórum mánuðum eftir titilinn Uppgjörið: Ísland - Úkraína 1-0 | Stelpurnar okkar nældu í þrjú stig Thelma Karen í byrjunarliðinu „Þau gefa okkur ótrúlega mikið með því að sýna okkur áhuga“ Iraola yfirgefur Bournemouth Vill sjá styttri leiki með engum spjöldum og fleiri mörkum „Trúum því að við getum gert eitthvað sérstakt“ Viðbrögðin við ráðningu kvenþjálfara „vandræðaleg“ „Hleyp jafn hratt og Mikael“ Sjá meira