Ásamt Gretu Salóme koma fram þau Sverrir Bergmann, Sigga Beinteins, KK, DJ Muscleboy, Jón Gnarr, Ragnheiður Gröndal, Aron Mola, Birgir Steinn og Katrín Halldóra.
Jól eins og áður er sambland af upplífgandi jólaboðskap og komedíu sem landinn þarf á að halda á þessum tímum. Indriða úr Fóstbræðrum bregður fyrir og DJ Muscleboy sendir 2020 stutta kveðju. Lagið og myndbandið kemur út þann 1. desember og er dreift af tónlistarfyrirtækinu SONY. Um upptökustjórn sá Bjarki Ómarsson, betur þekktur sem Bomarz.

„Það gekk ótrúlega vel að vinna þetta lag. Það voru allir svo jákvæðir og til í að gera þetta og sammála um að þetta væri eitthvað sem fólk þyrfti á að halda núna. Ekki mikið drama heldur bara birta og smá kómík. Ég átti hugmyndina og var komin með beinagrind að laginu og fór í stúdíó til Bjarka Ómars og við tókum þetta þaðan og kláruðum að semja lagið. Svo þurftum við að fá alla söngvarana inn í stúdíó eitt í einu og passa að það yrðu aldrei margir á sama tíma upp á smithættu. Þetta var smá púsluspil en ótrúlega skemmtilegt verkefni,“ segir Greta Salóme í samtali við Vísi.
Lagið og myndbandið verður frumsýnt á Vísi kl.12:00 á morgun.