„Það vantar bara algjörlega að gera kósý“ segir Alda um sínar óskir fyrir breytinguna. Hún á árs stelpu og þiggja ára strák, sem eiga sitthvort herbergið.
„Ég elska barnaherbergi“ sagði Soffía Dögg Garðarsdóttir spennt áður en hún fór og skoðaði rýmin sem hún ætlaði að breyta og skreyta. Hún varð ótrúlega glöð að sjá að barnaherbergin væru óskrifað blað og var strax uppfull af hugmyndum.
Verkefnið var að lakka skápahurðar, setja upp hillur, spegla, myndir, nýjar gardínur og fleira. Alda ætlaði svo sjálf að skapa ævintýraheim fyrir börnin með því að mála á veggina og fékk hún Soffíu með sér í að skipuleggja það verkefni.
Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.
Ekki festast í þema
„Þar sem þau fluttu inn í húsið sitt fyrr á þessu ári þá var allt svona frekar nýlega málað. Okkur langaði að finna leið til að gera barnaherbergin svolítið ævintýralegri, ennþá fallegri og eitthvað svona sem myndi grípa krakkana alveg,“ segir Soffía um þetta skemmtilega verkefni.

Soffía byrjaði á að Ráðleggja Erlu að hækka gardínustangirnar nær loftinu og fá sér svo síðar gardínur sem myndu ná niður í gólf.
„Okkur langaði að finna eitthvað til að skreyta veggina og eitthvað sem myndi eldast vel með barninu.“

Hún ráðleggur foreldrum að hugsa til aðeins lengri tíma.
„Það er svo mikilvægt þegar maður er að gera barnaherbergi að festast ekki of mikið í þemanu.“
Hún minnir á að börn geta verið snögg að fá æði fyrir einhverju allt öðru.

Fann hugmyndirnar á Pinterest
Alda hafði séð málaðan regnboga á Pinterest og vildi endurskapa hann í herbergi dótturinnar.
„Mig langaði að mæla eitthvað sætt, fríhendis, á veggina hjá krökkunum.“
Henni var ráðlagt að hafa regnbogann ekki of reglulegan, það kæmi betur út ef það myndi sjást að hann hefði verið málaður með pensli. Í herbergi sonarins málaði hún svo fallegan ævintýraskóg og var útkoman einstaklega falleg. Nánari upplýsingar um aðferðina má finna á síðunni Skreytum hús.
„Þetta var samt alveg erfitt, það er ekkert auðvelt að mála svona fríhendis,“ viðurkenndi Alda í þáttunum. Börnin voru samt ánægð með herbergin og því var þetta allt fyrirhafnarinnar virði.
„Mig langaði bara að gera eitthvað pínu öðruvísi en aðrir.“

Leikföngin eru skrautið
„Geymslukassar eru góðir og svo á bara að stilla upp og skreyta með barnadótinu,“ segir Soffía um lokaskrefið í verkefninu.
„Háar hillur eru ótrúlega sniðugar í krakkaherbergi. Við verðum samt að passa að veggfesta þær, það er mjög nauðsynlegt. Svo er þetta svo sniðugt því í efstu hillunum getið þið haft skrautdótið sem þið viljið hafa þarna inni en viljið ekki að krakkarnir nái í.“

Alda var einstaklega ánægð með að í herbergið setti Soffía krúttlega púða fyrir krílin að sitja á en einnig skemil sem er skemmtilegur fyrir börn og líka þægilegt sæti fyrir foreldrana.
Í ítarlegri bloggfærslu á síðunni Skreytum hús má finna frekari upplýsingar um breytingarnar, fullt af flottum myndum af hverju smáatriði og lista yfir þær vörur sem Soffía Dögg notaði til þess að breyta rýminu.

Hægt er að sjá breytinguna og horfa á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni. Þættirnir eru sýndir á þriðjudögum hér á Vísi og fara samhliða því inn á Stöð 2 Maraþon.