Innlent

Átján greindust með kórónuveiruna innanlands í gær

Atli Ísleifsson skrifar
Sjö af þeim sem greindust voru utan sóttkvíar, en ellefu voru í sóttkví við greiningu.
Sjö af þeim sem greindust voru utan sóttkvíar, en ellefu voru í sóttkví við greiningu. Vísir/Vilhelm

Átján greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Sjö af þeim sem greindust voru utan sóttkvíar, en ellefu voru í sóttkví við greiningu.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is. Fjörutíu er nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19 og þar af tveir á gjörgæslu. Í gær var 41 á sjúkrahúsi, þar af tveir á gjörgæslu.

Sex greindust smitaðir á landamærum – tveir með virkt smit, einn með mótefni og niðurstöðu mótefnamælingar er beðið í tilvikum þriggja.

199 manns eru nú í einangrun, en fjöldinn var 187 í gær. Þá eru 689 í sóttkví í dag, samanborið við 716 í gær.

Af þeim átján sem greindust í gær, greindust sextán eftir svokallaða einkennasýnatöku en tveir eftir sóttkvíar- og handahófsskimun.

Nú hafa 5.413 manns greinst smitaðir af kórónuveiru frá upphafi faraldursins. Á síðunni segir að af þeim veikst hafa af Covid-19 eru 27 nú látnir, en greint var frá 27. dauðsfallinu í morgun.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 41,5 en var 38,5 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 12,8, en var 13,1 í gær.

Alls voru tekin 1.133 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 357 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru tekin 129 sýni í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun og 301 í annarri skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×