„Það var farið með mig upp á spítala og dælt upp því sem hægt var“ Stefán Árni Pálsson skrifar 1. desember 2020 12:37 Stuðmaðurinn Jakob Frímann Magnússon er einn reynslumesti tónlistarmaður þjóðarinnar. Jakob Frímann Magnússon var ungur kominn á samning sem tónlistarmaður erlendis á tímum þegar afar fáir Íslendingar reyndu fyrir sér erlendis.
Jakob er nýjasti gestur Sölva Tryggvasonar í hlaðvarpi hans og segir hann í þættinum að foreldrar hans hafi skikkað hann til að mennta sig og fara ekki í ólifnað og fyrir það er hann afar þakklátur. „Foreldrar mínir lögðu hart að mér að klára stúdentspróf og settu það skilyrði fyrir að ég einbeitti mér að tónlistinni að ég myndi klára menntun fyrst. Þau vildu ekki að ég yrði öldurhúsagutlari gefinn fyrir sopann og fyrir það er ég þeim þakklátur. Það var mjög algengt á þessum tíma að menn færu í músíkina og því fylgdi að menn voru mikið að fá sér,“ segir Jakob og heldur áfram. „Eftir að hafa horft á þetta úr fjarlægð sé ég að þeir vinir mínir sem eru farnir í aðra vídd og ekki lengur meðal okkar að þar er töluvert samhengi við að hafa farið óvarlega með áfengi löngum stundum. Að taka spíra og sturta honum ofan í sig og slökkva á sér og vera ekki með sjálfum sér getur ekki verið gott fyrir mann til lengdar.“ Klippa: Jakob Frímann með Sölva Tryggva Jakob leggur mikið upp úr heilsusamlegu lífi, enda þekktur fyrir að vera unglegur. Hann segist alltaf hafa verið við frábæra heilsum en segist þó líklega ekki hafa gert sér grein fyrir langtímaáhrifum þess að hafa verið hætt kominn sem ungabarn eftir að hafa drukkið glas af terpentínu á vinnustofu móður sinnar. „Ég man ekki eftir því að hafa orðið fyrir neinum heilsubresti í gegnum tíðina og nánast blygðast mín fyrir að segja það. En það er einn þáttur sem ég hef aðeins leitt hugann að undanfarið, sem sennilega hefur haft meiri áhrif á líf mitt og heilsu en ég áttaði mig á. Það var í frumbernsku þegar ég er eins árs gamall í Kaupmannahöfn. Móðir mín var flinkur listmálari og hún var einhvern tímann að mála og var búin að setja penslana í terpentínuglas til að hreinsa þá og svo hringir síminn og hún hleypur í hann og á meðan fer óvitinn í þetta rauða glas og gúlpar í sig terpentínunni í sig,“ segir Jakob og bætir við að það hafi örugglega haft heilmikil áhrif á heilsuna sína að það hafi komið svona mikil terpentína inn í kerfið á honum sem ungabarn. Hafði örugglega áhrif á kerfið „Það var farið með mig upp á spítala og dælt upp því sem hægt var, en svo hefur þetta örugglega sest eitthvað inn í kerfið, á lendasvæðið og fleiri staði. Sennilega hefur það tekið líkama minn alveg þangað til að síðustu áramótum að hreinsa þetta allt saman alveg út. En ég vona að ég verði svo heppinn að fá að halda minni góðu heilsu og orku sem allra lengst.“ Jakob segist þakklátur fyrir uppvaxtarár sín, en eftir á að hyggja hafi hann líklega skort ákveðna nánd sem hafi mótað hann. „Fyrstu árin frá eins árs aldri til fimm ára aldurs elst ég mikið upp hjá afa mínum og ömmu af því að foreldrar mínir bjuggu í New York. Þetta voru öðruvísi tímar en nú og þeim leist ekki alveg á hugmyndina að vera með pínulítið barn í þessari stóru og hættulegu borg. Ég átti þarna frábæra tíma hjá afar góðu fólki, en ég hef stundum hugsað um það eftir á hvort mig hafi skort ákveðna nánd. Það hefur aðeins leitað á mig þetta blueprint sem við verðum á fyrstu fimm til sjö árum ævi okkar. Ég var að leita að mömmunni, en fann hana ekki og hvíldi í faðmi ömmu minnar í staðinn og í knús hjá henni. En hún hafði upplifað fyrri heimsstyrjöldina, spænsku veikina, berklana og seinni heimsstyrjöldina, þannig að sýkingarhætta og smithætta var ofarlega í hugum fólks og mig skorti því eftir á að hyggja líklega nánd og það hefur að einhverju leiti mótað mig. Maður sér þetta betur núna þegar maður er kominn á þennan stað í lífi sínu að geta horft yfir þetta með ákveðinni yfirsýn.“ Í þættinum ræða Sölvi og Jakob um ótrúlegan feril Jakobs í tónlistinni, á hvaða vegferð Ísland er, lykilinn að því að halda sér ungum í anda og margt fleira.
Podcast með Sölva Tryggva Mest lesið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Lífið Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Lífið Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Lífið Sassy fagnar 5 ára afmæli og stórum kaflaskiptum Lífið samstarf Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Lífið Listabarn á leiðinni Lífið Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Menning Fleiri fréttir Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Sjá meira