Erlent

Napó­leon-prófessorinn dæmdur fyrir morð

Sylvía Hall skrifar
Oleg Sokolov var dæmdur fyrir morð og ólöglega vörslu vopna.
Oleg Sokolov var dæmdur fyrir morð og ólöglega vörslu vopna. Getty/Sergey Nikolaev

Oleg Sokolov, rússneskur sagnfræðiprófessor á sjötugsaldri, hefur verið dæmdur í fangelsi fyrir að myrða 24 ára gamla ástkonu sína í Sankti Pétursborg á síðasta ári. Upp komst um morðið þegar handleggir konunnar fundust í bakpoka hans.

Prófessorinn er þekktur í heimalandi sínu fyrir þekkingu sína á hershöfðingjanum Napóleon Bonaparte og hafði hlotið viðurkenningu fyrir störf sín í Frakklandi. Ástkona hans, Anastasia Yeshchenko, hafði verið nemandi hjá honum og í kjölfarið unnið með honum að fræðiskrifum sem síðar þróaðist út í ástarsamband.

Greint var frá morðinu í nóvember á síðasta ári. Þá hafði Sokolov verið handtekinn, klæddur sem Napóleon, eftir að hafa ætlað sér að taka eigið líf.

Það var þá sem líkamsleifarnar fundust í bakpokanum, en hann hafði skömmu áður myrt Yeshchenko á heimili sínu eftir rifrildi og sagað af henni höfuðið, handleggi og fótleggi.

Sokolov játaði morðið og sagðist hafa skotið ástkonu sína í hita leiksins. Dómari sagði ljóst að hann hafi verið meðvitaður um gjörðir sínar á þeim tíma er morðið var framið. 

Hlaut hann tólf og hálfs árs fangelsi fyrir morð og ólöglega vörslu vopna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×