Vöknuðu við rúðurnar springa Kristín Ólafsdóttir skrifar 1. janúar 2021 17:18 Mikill eldur logaði á svölum íbúðarinnar í nótt. SKjáskot/Víkurfréttir Talsverður eldur kviknaði í íbúð í fjölbýlishúsi á Ásbrú í Reykjanesbæ í nótt. Tvö voru sofandi í íbúðinni þegar eldurinn kviknaði en vöknuðu þegar rúður sprungu vegna hita og komust óhult út, að sögn varðstjóra hjá Brunavörnum Suðurnesja. Víkurfréttir greindu fyrst frá málinu á Facebook-síðu sinni í morgun.
Útkallið barst um klukkan fjögur í nótt en Ingvi Þór Hákonarson aðstoðarvarðstjóri hjá Brunavörnum Suðurnesja segir í samtali við Vísi að ekki sé vitað hver eldsupptök eru. Eldurinn hafi verið mestur í kringum svaladyr á íbúðinni en hafi verið byrjaður að teygja sig inn í íbúðina. Fólkið sem var inni í íbúðinni komst út af sjálfsdáðum og varð ekki meint af. Ingvi segir að slökkvistarf hafi tekið um klukkutíma en reykræsta þurfti íbúðina eftir að eldurinn var slökktur. Ekki þurfti að rýma aðrar íbúðir í húsinu en nokkrir íbúar komu sér þó út þegar þeir urðu varir við eldinn. Að öðru leyti var nokkur erill í sjúkraflutningum hjá Brunavörnum Suðurnesja á nýársnótt, að sögn Ingva. Flutningarnir hafi þó ekki tengst flugeldaslysum heldur veikindum. Hér fyrir neðan má sjá myndband Víkurfrétta frá vettvangi í nótt.
Reykjanesbær Slökkvilið Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Fá engar bætur fyrir stolin bíl Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Innlent Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn Innlent Fleiri fréttir Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Sjá meira